Jens Klog

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. febrúar 2016 kl. 17:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. febrúar 2016 kl. 17:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Jens Klog“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Jens Klog verslunarstjóri á Kornhóskansi fæddist um 1778 og lést 1811.
Foreldrar hans voru Hans Jensen Klog kaupmaður í Eyjum, síðar í Danmörku og kona hans Abelone Klog, fædd Holm, húsfreyja.

Börn Abelone og Hans Klogs hér:
1. Ingeborg Klog f. um 1766 í Eyjum, d. 6. maí 1843 í Gloslunde.
2. Tómas Klog landlæknir í Nesi við Seltjörn, f. 15. apríl 1768, d. 31. janúar 1824.
3. Jens Klog verzlunarstjóri í Eyjum 1801, f. um 1778, d. 1811.
4. Anna Soffía Klog, f. um 1778, á lífi 1860.

Jens Klog var verslunarstjóri við Garðsverslun í umboði föður síns um skeið á síðustu árum 18. aldar og var enn í Kornhólskansi 1801. Hann fluttist til Reykjavíkur og ,,stóð fyrir enskri höndlun í Reykjavík, og drakk sér til bana,‘‘ segir Espólín.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslands árbækur í söguformi, (Árbækur Espólins), 1-13. Jón Espólín sýslumaður. Kaupmannahöfn 1821-1855 (ljóspr. Rvk 1943-1947).


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.