Valhöll

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. júlí 2012 kl. 12:17 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. júlí 2012 kl. 12:17 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Valhöll

Valhöll við Strandveg var byggt árið 1911 af Ágústi Gíslasyni, í kálgarðinum við Landlyst. Valhöll er eitt fyrsta steinsteypta húsið sem var byggt í Eyjum. Nafn Valhallar mjög líklega komið úr goðafræðinni eða sótt til Þingvalla. Valhöll var í eigu Þorsteins Eyjajarls, og á þeim tíma stóð það alveg við fjöruborðið, sem náði þá að þeim stað þar sem bensíndælurnar eru við verslunina Klett í dag. Auk þess að vera íbúðarhúsnæði hefur afgreiðsla loftleiða, Skrifstofur Ísfélagsins og síðar Fiskiðjunnar. Einnig hefur húsnæðið verið notað undir kosningaskrifstofur. Var Pétur Eggerts með skrifstofu í húsinu en nú er þar til húsa Heildversluna G-Stefánssonar.

Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu


Heimildir

  • Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár, I. bindi. Reykjavík: Vestmannaeyjabær, 1982.
  • Strandvegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.