Ísleifur Sigurðsson (Ráðagerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. mars 2016 kl. 11:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. mars 2016 kl. 11:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ísleifur Sigurðsson (Ráðagerði)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Ísleifur Sigurðsson útgerðarmaður, sjómaður, verkamaður í Ráðagerði fæddist 4. apríl 1884 í Litlu-Hildisey í A-Landeyjum og lést 18. febrúar 1960.
Foreldrar hans voru Sigurður Guðmundsson bóndi og formaður við Landeyjasand, f. 28. júní 1851 í Klömbru u. Eyjafjöllum, d. 14. apríl 1910 í Eyjum, og kona hans Steinunn Ísleifsdóttir húsfreyja, f. 16. september 1856, d. 11. júní 1954.

Bróðir Ísleifs var Guðni Sigurðsson sjómaður í Eyjum, f. 5. nóvember 1899, d. 15. nóvember 1985.

Ísleifur var aðkominn sjómaður í Lambhaga 1910, útgerðarmaður í Ráðagerði 1930, verkamaður endranær. Þau Valfríður giftu sig 1911 og fluttust að Lambhaga á því ári, hann frá Hildisey, hún úr Reykjavík.
Þau reistu Birtingarholt ásamt Ágústi Jóni Guðmundssyni 1912 og bjuggu þar 1912-1922, voru komin í Ráðagerði 1923 með börnin.
Ásgeir sonur þeirra dó 1930.
Aðalsteinn Sigurður sonur þeirra var andlega heftur.
Dæturnar voru enn hjá þeim 1934, en farnar 1940. Hjónin og Aðalsteinn bjuggu í Ráðagerði til dd.
Aðalsteinn Sigurður lést 1950.
Ísleifur lést 1960 og Valfríður 1964.

Kona Ísleifs, (1911), var Valfríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 24. ágúst 1887 í Njarðvíkursókn, d. 19. júlí 1964.
Börn þeirra hér:
1. Unnur Ágústa Ísleifsdóttir kjólasaumakona í Danmörku, f. 13. ágúst 1912 í Birtingarholti, d. 27. maí 1995.
2. Sigríður Fjóla Ísleifsdóttir húfreyja, sjúkrahússtarfsmaður í Svíþjóð, f. 14. desember 1913 í Birtingarholti, d. 23. september 1993.
3. Ásgeir Ísleifsson, f. 15. maí 1915 í Birtingarholti, d. 14. ágúst 1930.
4. Aðalsteinn Sigurður Ísleifsson öryrki, f. 27. júlí 1921 í Birtingarholti, d. 10. nóvember 1950.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.