Jóhanna Guðný Helga Sveinsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. ágúst 2015 kl. 17:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. ágúst 2015 kl. 17:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jóhanna Guðný Helga Sveinsdóttir''' frá Löndum, síðar húsfreyja í Utah fæddist 9. febrúar 1861 á Löndum og lést 15. febrúar 1907(17. maí 1927, segir annarssta...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Guðný Helga Sveinsdóttir frá Löndum, síðar húsfreyja í Utah fæddist 9. febrúar 1861 á Löndum og lést 15. febrúar 1907(17. maí 1927, segir annarsstaðar).
Foreldrar hennar voru Sveinn Þórðarson beykir á Löndum, f. 18. febrúar 1827, d. 4. nóvember 1901 Vestanhafs, og kona hans Helga Árnadóttir húsfreyja, f. 6. júlí 1833, d. 15. febrúar 1907 í Vesturheimi.

Systkini hennar, sem lifðu, voru
1. Solveig Þórdís Jórunn Sveinsdóttir, f. 24. apríl 1858, d. 6. apríl 1920 Vestanhafs. Hún var kona Árna Árnasonar yngri frá Vilborgarstöðum, sem fór Vestur.
2. Jón Júlíus Sveinsson, bar eftirnafnið Thorderson Vestanhafs, f. 1. desember 1872, d. 24. maí 1951. Hann fór til Utah með foreldrum sínum 1878.

Jóhanna var með foreldrum sínum á Löndum, uns þau fluttust til Vesturheims 1878, var hjá Solveigu systur sinni á Löndum 1879, vinnukona í Stakkagerði 1880 og fór þaðan Vestur 1881.
Hún giftist James Peter Johnson smið, dönskum manni. Þau bjuggu í Scofield í Utah og síðar í Cleveland þar.
Meðal barna þeirra voru
1. Lawrence, d. úr barnaveiki 14 ára.
2. Perley, d. úr barnaveiki 9 ára.
3. Eunice, d. úr barnaveiki 3 ára.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • References-Helga og Sveinn.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
  • The Icelanders in Utah. La Nora Allred.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.