Kristín Jónsdóttir (Stakkagerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. maí 2015 kl. 11:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. maí 2015 kl. 11:54 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Jónsdóttir vinnukona fæddist 1830 í Álftaveri í V-Skaft. og lést 1. desember 1902.
Móðir hennar var Guðríður húsfreyja í Holti í Álftaveri, f. 1801, Einarsdóttir bónda í Skálmarbæ þar, f. 1773, drukknaði á Stokkseyri 30. apríl 1815, Einarssonar, og konu Einars Einarssonar, Ingveldar húsfreyju, f. 1769, Jónsdóttur.
Faðir Kristínar var líklega Jón Sigurðsson, f. um 1799, d. 1883.

Kristín var í Holti 1835 hjá ekkjunni móður sinni, sem var búandi þar.
Hún kom í fóstur til Sesselju Sigurðardóttur og Jóns Gíslasonar í Stakkagerði 1838 og var skráð fósturbarn þar enn 1845, vinnukona frá 1846 og enn 1851, á Vesturhúsum 1855, á Oddsstöum 1856-1860, á Löndum 1861-1862, í Fagurlyst 1863, á Gjábakka 1864-1866, á Miðhúsum 1867, á Fögruvöllum 1869-1970, í Helgahjalli 1871-1872, í Götu 1875, í Vanangri 1876-1877, í Svaðkoti 1879, í London 1880-1882, á Oddsstöðum 1883-1884, í Uppsölum 1885-1888, á sveit í Kuðungi 1890, í Péturshúsi 1901.
Kristín lést á sveit í Péturshúsi 1902.
Hún var ógift og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.