Sigríður Þorgilsdóttir (Knarrarhöfn)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júlí 2015 kl. 10:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júlí 2015 kl. 10:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Sigríður Þorgilsdóttir''' húsfreyja í Knarrarhöfn við Fífilgötu 8 fæddist 7. júlí 1904 í Knarrarhöfn í Dalasýslu og lést 12. maí 1991. <br> ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Þorgilsdóttir húsfreyja í Knarrarhöfn við Fífilgötu 8 fæddist 7. júlí 1904 í Knarrarhöfn í Dalasýslu og lést 12. maí 1991.
Foreldrar hennar voru Halldóra Ingibjörg Sigmundsdóttir húsfreyja, f. 30. apríl 1867, d. 28. september 1909 og maður hennar Þorgils Friðriksson bóndi, f. 12. ágúst 1860, d. 29. janúar 1953.

Sigríður var með ekklinum föður sínum og systkinum sínum í Knarrarhöfn 1910, vinnukona hjá Steinunni systur sinni þar 1920.
Hún kom til Eyja úr Dalasýslu 1928 og stundaði afgreiðslustörf.
Þau Ingi giftu sig 1929 og bjuggu í fyrstu í Steinholti, eignuðust 3 börn sín þar. Þau byggðu húsið Knarrarhöfn og bjuggu þar uns þau fluttust til Reykjavíkur á 5. áratuginum Þar bjuggu þau síðan.
Dætur þeirra Jónína Þóra og Unnur Dóra fluttust til Bandaríkjanna og Þorgils til Skotlands.
Ingi lést 1974 og Sigríður 1991.

Maður hennar, (5. október 1929), var Ingi Kristmanns bankagjaldkeri, bankaritari, f. 13. nóvember 1905, d. 31. desember 1974.
Börn þeirra hér:
1. Kristján Ágúst Kristmanns, f. 17. febrúar 1931 í Steinholti, býr í Reykjavík. Kona hans er Jónína Erna Guðlaugsdóttir húsfreyja, f. 15. nóvember 1933.
2. Jónína Þóra Kristmanns, f. 1. október 1934 í Steinholti. Hún fluttist til Bandaríkjanna, býr í S-Carolina. Maður hennar er Jimmy Jones. Þau eiga 3 börn.
3. Unnur Dóra Kristmanns, f. 1. október 1934 í Steinholti. Hún fluttist til Bandaríkjanna. Maður hennar var John Nelson. Þau áttu 3 dætur.
4. Þorgils Agnar Kristmanns, f. 25. október 1941. Hann býr í Skotlandi. Kona hans, (1966 í Glasgow í Skotlandi), var Anne Christine Kristmanns, fædd Dunleavey 1941, d. 2002.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Dalamenn ─ æviskrár 1703-1961. Jón Guðnason.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Sigríður Kristmanns Ágústsdóttir.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.