Ingimundur Skúlason (Kirkjubæ)
Ingimundur Skúlason tómthúsmaður á Kirkjubæ fæddist 13. mars 1816 á Götum í Mýrdal og lést 4. júní 1862 uppi á landi, jarðs. frá Breiðabólstaðarkirkju.
Foreldrar hans voru Skúli Jónsson bóndi á Götum, f. 1785 þar, d. 31. maí 1828 í Reynisdal og kona hans Helga Höskuldsdóttir húsfreyja, f. 1768, d. 24. júlí 1842 á Ytri-Sólheimum.
Ingimundur var með foreldrum sínum á Götum 1816, en vinnumaður í Reynisdal 1834.
Hann kom til Eyja 1842 frá Vatnsdalskoti í Fljótshlíð, vinnumaður að Vilborgarsstöðum. 1843-1850 var hann kvæntur vinnumaður á Búastöðum, en 1851 voru þau komin í húsmennsku á Kirkjubæ og voru þar 1851-1860, en þá varð Ástríður gift vinnukona í Ólafshúsum, en Ingimundur var á Kirkjubæ.
Hann lést 1862.
Kona Ingimundar var Ástríður Sveinsdóttir húsfreyja, f. 1800 í Breiðabólsstaðarsókn í Fljótshlíð, d. 4. nóvember 1863.
Börn þeirra hér:
1. Helga Ingimundardóttir, f. 9. nóvember 1841 í Vatnsdalskoti í Fljótshlíð, d. 14. júlí 1871.
2. Jóhann Ingimundarson, f. 4. mars 1844 í Steinmóðshúsi, d. 14. mars 1844 úr ginklofa.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.