Steinunn Oddsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. september 2014 kl. 21:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. september 2014 kl. 21:39 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Steinunn Oddsdóttir húsfreyja á Oddsstöðum fæddist 22. janúar 1824 á Stekkjarhjáleigu í Hálssókn í Hamarsfirði í S-Múlasýslu.
Foreldrar hennar voru Oddur bóndi í Stekkjarhjáleigu hjá Hálsi í Hamarsfirði, f. um 1768 í Borgargerði í Hálssókn, Gunnlaugs bónda í Búlandsnesi, f. um 1708 og konu Gunnlaugs, Málfríðar Einarsdóttur. Móðir Steinunnar og barnsmóðir Odds, (Steinunn var framhjátökubarn Odds bónda), var Jóhanna Ketilsdóttir, en móðir hennar var Katrín Jörundsdóttir, f. 1758.
Steinunn var gift vinnukona og hjú á Kallsstöðum í Berunessókn í S-Múl. 1845, gift Þorláki Vigfússyni. Hjá þeim var sonur þeirra Stefán Jóhannes.
Hún var húsfreyja á Kirkjubæ í Eyjum 1870 og á Oddsstöðum 1880.

Steinunn var tvígift.
I. Fyrri maður hennar, (26. september 1845), var Þorlákur Vigfússon vinnumaður á Kallsstöðum í Berufirði 1845, f. 1804. Foreldrar hans voru Vigfús Jónsson bóndi í Kirkjubólsseli í Stöðvarfirði og kona hans Guðrún Erlendsdóttir húsfreyja, f. um 1770.
Börn þeirra hér:
1. Stefán Jóhannes Þorláksson, f. 30. október 1843, d. 1892.
2. Þorgerður Þorláksdóttir, f. 2. júlí 1846.

II. Síðari maður hennar var Árni Þórarinsson, f. 1825, bóndi á Kirkjubæ í Eyjum 1870 og á Oddsstöðum 1880.
Árni og Steinunn bjuggu „alllengi að Hofi í Öræfum og fluttust síðar til Vestmannaeyja og bjuggu þar að Oddsstöðum.“ (Saga Ve.II.228). Árni og Steinunn létu háöldruð af búskap, komin yfir áttrætt, og fóru í hornið til dóttur sinnar í Frydendal.
Börn þeirra hér:
3. Oddur Árnason, f. 1851, d. 2. nóvember 1863.
4. Anna Sigríður Árnadóttir Johnsen húsfreyja, f. 4. júní 1855 í Geithellnasókn, S-Múl., d. 30. ágúst 1930. Hún var húsfreyja í Frydendal.
5. Þorgeir Árnason, f. 1858 í Heydalasókn, S-Múl., vinnumaður á Hnappavöllum í Öræfum og Vattarnesi við Reyðarfjörð 1890.
6. Sveinn Árnason Skaftfell smiður, f. 5. október 1859 á Hofi í Öræfum. Hann var vinnumaður í Nýborg, lærði trésmíði og stundaði hana á Djúpavogi og á Fáskrúðsfirði, fór til Vesturheims 1900.
7. María Árnadóttir, f. 8. maí 1861, d. 24. janúar 1878.
8. Þorgerður Árnadóttir húsfreyja, f. 1865. Hún var húsfreyja á Oddsstöðum 1901, fór til Vesturheims 1903 með Jóni Brandssyni manni sínum og þrem börnum.
9. Oddur Árnason útgerðarmaður í Eyjum, f. 30. júní 1865, d. 8. ágúst 1898, faðir Árna Oddssonar á Burstafelli.


Heimildir