Árni Guðmundsson (Brekkuhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. mars 2014 kl. 17:46 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. mars 2014 kl. 17:46 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Árni Guðmundsson bóndi í Brekkuhúsi fæddist 18. desember 1817 og lést 20. júlí 1889.
Foreldrar hans voru Guðmundur Benediktsson bóndi í Voðmúlastaða-Austurhjáleigu (nú Búland) í A-Landeyjum, f. 1779 í Ólafshúsum u. Eyjafjöllum, d. 13. febrúar 1848, og kona hans Guðrún Vigfúsdóttir húsfreyja, f. 18. júní 1789 í Búðarhóls-Austurhjáleigu (nú Hólavatn), d. 14. janúar 1842.

Systkini Árna í Eyjum voru:
1. Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Hólmahjáleigu í A-Landeyjum, síðar í Draumbæ f. 26. desember 1813, drukknaði 29. september 1855.
2. Þorgerður Guðmundsdóttir vinnukona í Brekkuhúsi, f. 15. febrúar 1824, d. 1. júní 1866, ógift.
3. Guðmundur Guðmundsson gullsmiður, mormónatrúboði og forseti safnaðarins í Eyjum, síðar í Lehi í Utah, f. 10. mars 1825, d. 20. september 1883, kvæntur Maríu Guðmundsson (dönsk kona).
4. Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Vanangri, f. 19. september 1828, d. 9. september 1860, gift Magnúsi Eyjólfssyni silfursmið.
5. Benedikt Guðmundsson vinnumaður í Háagarði, f. 19. apríl 1821, drukknaði 26. mars 1842. Hann var faðir Péturs í Þorlaugargerði ættföður eldri Oddsstaðasystkina.

Árni var 22 ára með fjölskyldu sinni í Austur-Voðmúlastaðahjáleigu í A-Landeyjum 1840.
Hann var kvæntur sjómaður í Brekkuhúsi 1845 með Þóru, Oddrúnu tengdamóður sinni og Guðrúnu Stígsdóttur mágkonu sinni.
1850 var hann í Brekkuhúsi með Þóru og barni þeirra Auðuni Árnasyni þriggja ára. Vinnukona var Sigríður Guðmundsdóttir systir hans, og hún var með dóttur sína Valgerði Níelsdóttur hjá sér.
1855 var Árni sjávarbóndi í Brekkuhúsi með Þóru og börnunum Auðuni 7 ára og Guðlaugi 3 ára. Guðrún mágkona hans var þar í heimili.
Auðun hrapaði til bana úr Hamrinim 1859.
1860 voru þau Þóra í Brekkuhúsi með Guðlaug son sinn og Guðrúnu vinnukonu, systur Þóru. Þar var einnig María Magnúsdóttir 7 ára tökubarn um stund. Hún var systurdóttir Árna, dóttir Guðrúnar og Magnúsar Eyjólfssonar silfursmiðs. f. 18. maí 1854, d. 20. júlí 1861.
1870 voru þau enn búandi í Brekkuhúsi með Guðlaug 17 ára. Vinnufólk var Guðlaug Magnúsdóttir 17 ára, en hún var líka systurdóttir Árna. Vinnumaður var Þóroddur Sighvatsson 40 ára kvæntur fyrrum bóndi á Núpi u. Eyjafjöllum.
Niðursetningur var Ingimundur Árnason 11 ára.
Guðlaug son þeirra Árna og Þóru tók út í Brimurð 1877.
1880 voru hjónin próventufólk í Brekkuhúsi hjá Sigurði Ögmundssyni bónda og konu hans Sigríði Magnúsdóttur húsfreyju.
Árni lést 1889. Hann hafði veikst á geði, hvarf að heiman um nótt og fannst látinn á floti við Hamarinn.

Kona Árna, (28. október 1841), var Þóra Stígsdóttir húsfreyja í Brekkuhúsi, f. 29. janúar 1824, d. 8. október 1892.
Börn þeirra hér:
1. Valgerður Árnadóttir, f. 1. júní 1846, d. 8. júní 1846 úr ginklofa.
2. Auðun Árnason, f. 3. október 1848, d. 7. september 1859, hrapaði úr Hamrinum.
3. Guðlaugur Árnason, f. 24. nóvember 1853, drukknaði 27. janúar 1877, tók út í brimi, er hann gekk á reka í Brimurð.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.