Valgerður Jónsdóttir (Norðurgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. mars 2014 kl. 18:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. mars 2014 kl. 18:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Valgerður Jónsdóttir (Norðurgarði)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Valgerður Jónsdóttir frá Norðurgarði, síðar húsfreyja í Litlabæ og að lokum meðal útflytjenda til Vesturheims 1886, fæddist 20. ágúst 1832 og lést 7. október 1896.
Foreldrar hennar voru Jón Jónsson bóndi í Norðurgarði, f. 1. mars 1791 í Fljótshlíð, hrapaði til bana úr Stórhöfða 21. ágúst 1851, og kona hans Ingibjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Norðurgarði, f. 26. nóvember 1799, d. 29. nóvember 1883.

Valgerður var í foreldrahúsum í Norðurgarði. Hún var þar hjá móður sinni 1855, vinnukona í Kastala 1860, húsfreyja í Litlabæ 1870 og 1880.
Hún fór til Vesturheims 1886 frá Litlabæ. Hún var þar í fylgd dóttur sinnar Guðríðar og manns hennar Markúsar Vigfússonar, f. 25. desember 1851, og þriggja barna þeirra. Valgerður var þá 55 ára „gift kona“.

Valgerður átti börn með fjórum mönnum:
I. Einar Guðmundsson bóndi á Steinsstöðum, f. 26. mars 1834, d. 27. maí 1858. Þau Valgerður voru systrabörn.
Börn Valgerðar og Einars voru:
1. Ingibjörg Einarsdóttir, f. 8. mars 1854, d. 24. apríl 1905. Var hjá ömmu sinni í Norðurgarði 1860, léttastúlka á Fögruvöllum 1870, vinnukona á Stíflu í Fljótshlíð 1880, vinnukona á Blábringu á Rangárvöllum hjá Jóni Guðmundssyni barnsföður sínum og fjölskyldu hans 1890 með barni þeirra Ingigerði Jónsdóttur.
2. Jón Einarsson á Garðsstöðum, f. 1857, d. 1906. Kona hans var Ingibjörg Hreinsdóttir húsfreyja á Garðsstöðum og Eiðum f. 13. janúar 1854, d. 18. nóvember 1922.

II. Wúlf (svo), Wolf (SMJ). Barn þeirra
3. Guðríður Woolf Vigfússon, f. 26. apríl 1858, d. 8. desember 1933. Guðríður fór til Vesturheims 1886 með fjölskyldu.

III. Ísak Jakob Jónsson þurrabúðarmaður í Kastala, síðar bóndi í Norðurgarði, f. 1833.
Barn þeirra:
4. Hjálmar Ísaksson skipasmiður í Kuðungi, f. 17. september 1860, d. 3. október 1929. Kona hans, (1886), var Andría Hannesdóttir frá Grímshjalli, f. 1857, d. 1899.

IV. Einar Jónsson frá Dölum, sjávarbóndi í Litlabæ, f. 1815, d. 13. mars 1894.
Barn þeirra:
5. Sigurbjörg Einarsdóttir, f. 1862. Fór til Vesturheims frá Nýborg 1889.


Heimildir