Elín Guðmundsdóttir (Steinmóðshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. október 2013 kl. 20:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. október 2013 kl. 20:02 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Elín Guðmundsdóttir húsfreyja í Steinmóðshúsi fæddist 27. ágúst 1796 á Hamri í Laxárdal, S-Þing og lést 8. júlí 1876.
Faðir hennar var Guðmundur bóndi á Hamri, f. um 1763, d. 24. ágúst 1846 á Hallbjarnarstöðum í Reykjadal, Kolbeinsson bónda á Daðastöðum og Hjalla í Reykjadal, f. um 1722, Bjarnasonar bónda í Hrísgerði í Fnjóskadal, f. (1685), Kolbeinssonar, og óþekktrar konu Bjarna.
Móðir Guðmundar á Hamri er ókunn.
Móðir Elínar í Steinmóðshúsi og kona (1792) Guðmundar á Hamri var Guðrún húsfreyja, f. um 1762, d. 20. maí 1816 í Miðhvammi í Aðaldal, S-Þing., Ingimundardóttir.

Elín var í vist á nokkrum bæjum í S-Þing., á Einarsstöðum 1816, vinnukona í Gufunesi um 1820. Hún var síðan húsfreyja í Brekkuhúsi, Kastala og í Ömpuhjalli. Húsfreyja í Steinmóðshúsi var hún 1845 og 1850, búandi ekkja, „lifir á handafla“ þar 1860 og tómthúskona þar 1870.

I. Barnsfaðir Elínar var Bjarni Thorarensen amtmaður og skáld, f. 30. desember 1786, d. 24. ágúst 1841.
Barnið var:
1. Sigríður Guðmundsdóttir (skráð dóttir Guðmundar í Kastala), f. 19. apríl 1821, d. 2. apríl 1911. Hún varð kona Magnúsar Jónssonar bónda í Skarfanesi á Landi.

Elín var tvígift:
II. Fyrri maður hennar (5. nóvember 1820) var Guðmundur Þorgeirsson tómthúsmaður í Kastala, f. um 1779, d. 1. janúar 1853.
Börn þeirra voru:
2. Guðrún Guðmundsdóttir, f. 25. ágúst 1822, bústýra hjá ekklinum Sighvati Þóroddssyni í Helgahjalli 1845. Þar er hún með son sinn, Jón Guðrúnarson. Hún er hjá móður sinni í Steinmóðshúsi 1850, 28 ára, ógift.
3. Guðfinna Guðmundsdóttir, f. 23. dsember 1823, d. 30. desember 1823.

III. Síðari maður Elínar (15. júlí 1832) var Steinmóður Vigfússon tómthúsmaður í Steinmóðshúsi, f. 1775, d. 28. júlí 1846.
Börn þeirra Elínar voru:
4. Vigfús Steinmóðsson (Steinmóðshúsi), f. 1829, d. sama ár.
5. Vilborg Steinmóðsdóttir, f. 27. febrúar 1833.
6. Jón Steinmóðsson, f. 1834, d. 1896.
7. Elín Steinmóðsdóttir, f. 1836.
8. Sigríður Steinmóðsdóttir, f. 20. desember 1842, d. 12. febrúar 1924. Hún var gift vinnukona í Ysta-Skála undir Eyjafjöllum 1870. Maður hennar var þar Jón Hannesson vinnumaður; ekkja, vinnukona í Holti þar 1890, hjá dóttur sinni húsfreyjunni Jónínu Sigríði Jónsdóttur á Vesturgötu 55 í Rvk 1901, niðursetningur í Varmahlíð u. Eyjafjöllum 1910.

IV. Hún átti barn með Jóni Þorgeirssyni, síðar á Oddsstöðum, f. 1808.
9. Elín Jónsdóttir, f. 5. júlí 1826.

V. Elín átti barn með Þorkeli Jónssyni á Vilborgarstöðum.
Barnið var
Jón Þorkelsson, f. 23. júlí 1827.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Ættir Austur-Húnvetninga. Guðmundur Sigurður Jóhannsson og Magnús Björnsson. Mál og mynd 1999.
  • Íslenzkar æviskrár. Páll Eggert Ólason og fleiri. Hið íslenzka bókmenntafélag 1948-1956.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.