Jóel Eyjólfsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. ágúst 2013 kl. 17:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. ágúst 2013 kl. 17:18 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Jóel

Jóel Eyjólfsson, Sælundi, var fæddur 3. nóvember 1878 að Kirkjubæ í Vestmannaeyjum og lést 28. desember 1944. Foreldrar hans voru Eyjólfur Eiríksson og Jórunn Skúladóttir.

Jóel var formaður á Immanúel sem hann keypti ásamt fleirum. Eftir að hann lét af formennsku rak hann útgerð sína í fleiri ár.

Jóel var með bestu bjargfuglaveiðimönnum Vestmannaeyja og einnig góður sigmaður.

Fjölskylda

Fyrri kona Jóels var Þórdís Guðmundsdóttir frá Vesturhúsum (f. 28/8 1877, d. 4/6 1908). Synir þeirra voru Þorgeir og Guðmundur.

Seinni kona Jóels var Oktavía Einarsdóttir (f. 22/10 1880, d. 31/12 1929). Börn þeirra voru Einar, Edvin, Jóel og Þórdís.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ritverk Árna Árnasonar/Jóel Eyjólfson


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum

Myndir