1973 Allir í bátana/Frásagnir, greinar og viðtöl tengd Heimaeyjargosinu/Marý Gunnarsdóttir og Runólfur Alfreðsson Sá Urðavita springa í loft upp

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. júní 2025 kl. 18:32 eftir Frosti (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. júní 2025 kl. 18:32 eftir Frosti (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sá Urðavita springa í loft upp

Marý Gunnarsdóttir og Runólfur Alfreðsson

Marý Gunnarsdóttir sá Urðavitann springa í loft upp um tvö­leytið. Þau Marý og Runólfur Alfreðsson flýðu fyrst vestur í bæinn með 5 ára dóttur sína til systur Runólfs og mágs, Sigurjóns Óskarssonar skipstjóra á vélbátnum Þórunni Sveinsdóttur. Þegar út barst boð um, að allir skyldu yfirgefa eyjuna, þá skruppu þau fyrst heim á stórum vörubíl og náðu í fatnað. Klukkan var að ganga fjögur. Þá var komið öskufall austur á bæjum, en aðeins kulaði af austri. Á húsi þeirra var austurgaflinn þá orðinn svo heitur, að óþægilegt var að halda hendi við hann. Fjölskyldan fór síðan til lands með Þórunni Sveinsdóttur, sem er 105 rúmlesta stálskip. Um tvö hundruð manns voru með bátnum og þar á meðal margt gamalt fólk. Mikil sjóveiki var um borð.

Heimild: .


Heimildir

  • Guðjón Ármann Eyjólfsson. VESTMANNAEYJAR, BYGGÐ OG ELDGOS. Ísafoldarprentsmiðja 1973



Heimildir