Sigurjón Óskarsson (skipstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sigurjón Óskarsson.

Sigurjón Óskarsson fæddist í Vestmannaeyjum 3. maí 1945. Hann er sonur hjónanna Þóru Sigurjónsdóttur og Óskars Matthíassonar. Sigurjón er kvæntur Sigurlaugu Alfreðsdóttur og eiga þau 3 börn.

Sigurjón lauk námi í Vélskólanum og Stýrimannaskólanum í Eyjum.
Hann ólst upp við sjómennsku og útgerð þar sem faðir hans var skipstjóri. Þegar Sigurjón var 17 ára gamall fór hann fyrst til sjós. Sigurjón varð formaður árið 1972 og var hann strax aflamikill. Sigurjón hefur verið afla- og fiskikóngur Vestmannaeyja 11 sinnum á 19 árum.
Þau Sigurlaug giftu sig, eignuðust þrjú börn.

I. Kona Sigurjóns er Sigurlaug Alfreðsdóttir húsfreyja, f. 6. maí 1947.
Börn þeirra:
1. Viðar Sigurjónsson, f. 9. október 1965.
2. Gylfi Sigurjónsson, f. 19. október 1966.
3. Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir, f. 19. febrúar 1973.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1974.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.