Hafþór Theodórsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. nóvember 2024 kl. 15:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. nóvember 2024 kl. 15:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Hafþór Theodórsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hafþór Theodórsson, matsveinn, stýrimaður, hafnarvörður fæddist 6. júlí 1961.
Foreldrar hans Theodór Snorri Ólafsson vélstjóri, útgerðarmaður, f. 14. maí 1933, d. 16. september 2020, og kona hans Margrét E. Sigurbjörnsdóttir húsfreyja, f. 10. febrúar 1934.

Börn Margrétar og Theodórs:
1. Þorbjörg Theodórsdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 4. júní 1959, kjörbarn þeirra. Maður hennar Haukur Logi Michelsen.
2. Hafþór Theodórsson matsveinn, stýrimaður, hafnarvörður, f. 6. júlí 1961. Kona hans Hanna R. Björnsdóttir.
3. Sigurbjörn M. Theodórsson vélstjóri, f. 4. júlí 1960, d. 22. júní 2020, ókvæntur.
4. Júlíana Theodórsdóttir húsfreyja, starfsmaður Hraunbúða, f. 6. ágúst 1962. Maður hennar Ingólfur Ingólfsson.
5. Bára Theodórsdóttir sérkennari í Svíþjóð, f. 17. desember 1966. Maður hennar Tommy Westman.
6. Björk Theodórsdóttir viðskiptafræðingur, f. 10. apríl 1971, ógift.
7. Harpa Theodórsdóttir húsfreyja, f. 24. febrúar 1975. Maður hennar Örvar Guðni Arnarson.

Þau Hanna giftu sig, eignuðust ekki börn saman en Hanna á eitt barn. Þau búa við Búhamar 60.

I. Kona Hafþórs er Hanna R. Björnsdóttir, húsfreyja, félagsráðgjafi, f. 25. febrúar 1960.
Barn Hönnu:
1. Jóhann Birnir Sigurðsson, f. 11. júní 1991.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.