Sigurbjörn M. Theodórsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sigurbjörn M. Theodórsson.

Sigurbjörn M. Theodórsson vélstjóri fæddist 4. júlí 1960 í Keflavík og lést 22. júní 2020.
Foreldrar hans voru Theodór Snorri Ólafsson vélstjóri, útgerðarmaður, f. 14. maí 1933, d. 16. september 2020, og kona hans Margrét E. Sigurbjörnsdóttir húsfreyja, f. 10. febrúar 1934.

Börn Margrétar og Theodórs:
1. Þorbjörg Theodórsdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 4. júní 1959, kjörbarn þeirra. Maður hennar Haukur Logi Michelsen.
2. Hafþór Theodórsson matsveinn, stýrimaður, f. 6. júlí 1961. Kona hans Hanna R. Björnsdóttir.
3. Sigurbjörn M. Theodórsson vélstjóri, f. 4. júlí 1960, d. 22. júní 2020, ókvæntur.
4. Júlíana Theodórsdóttir húsfreyja, starfsmaður Hraunbúða, f. 6. ágúst 1962. Maður hennar Ingólfur Ingólfsson.
5. Bára Theodórsdóttir sérkennari í Svíþjóð, f. 17. desember 1966. Maður hennar Tommy Westman.
6. Björk Theodórsdóttir viðskiptafræðingur, f. 10. apríl 1971, ógift.
7. Harpa Theodórsdóttir húsfreyja, f. 24. febrúar 1975. Maður hennar Örvar Guðni Arnarson.

Sigurbjörn var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lauk landsprófi í Gagnfræðaskólanum, lauk IV. stigi vélstjórnar í Vélskóla Íslands í Reykjavík 1985.
Sigurbjörn vann til sjós, var lengst vélstjóri, m.a. á Sæbjörgu VE, Dagstjörnunni KE, Gissuri ÁR, Hugin VE, Gjafari Ve, Breka VE, Snorra Sturlusyni RE, Bergi VE, og á skipum Eimskipafélagsins.
Sigurbjörn starfaði við MAK-vélaverksmiðjuna í Kiel í Þýskalandi árið 1991.
Hann vann síðan í Skipalyftunni í Eyjum.
Sigurbjörn lést 2020, ókvæntur og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.