Guðrún Linda Þorvaldsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. nóvember 2024 kl. 13:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. nóvember 2024 kl. 13:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Guðrún Linda Þorvaldsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Linda Þorvaldsdóttir, húsfreyja, lífeindafræðingur fæddist 3. janúar 1953.
Foreldrar hennar voru Þorvaldur Örn Vigfússon frá Holti, húsgagnasmíðameisari, f. 24. janúar 1929, d. 16. september 2002, og kona hans Ásta Þorvarðardóttir frá Siglufirði, húsfreyja, f. 17. júlí 1929, d. 13. febrúar 2016.

Börn Ástu og Þorvaldar Arnar:
1. Guðrún Linda Þorvaldsdóttir, f. 3. janúar 1953.
2. Valgerður Þorvaldsdóttir húsfreyja, f. 10. júní 1955. Maður hennar Ola K. Nå.
3. Þorvarður Vigfús Þorvaldsson húsgagna- og húsasmíðameistari, f. 20. nóvember 1956, d. 9. janúar 2015. Kona hans Guðrún Bjarný Ragnarsdóttir.
4. Jóhanna Erla Þorvaldsdóttir, f. 25. september 1960. Sambýlismaður hennar Sigurður Guðmundsson.
5. Hannes Þorvaldsson, f. 6. júní 1969. Kona hans Anna M. Sívertsen.
6. Björk Þorvaldsdóttir, f. 31. desember 1973. Maður hennar Hjalti Erdmann Sveinsson.

Þau Júlíus Rafn hófu sambúð, eignuðust eitt barn. Þau skildu.
Þau Guðmundur giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau skildu.
Guðrún Linda býr í Rvk.

I. Fyrrum sambúðarmaður Guðrúnar Lindu er Júlíus Rafn Júlíusson, vélstjóri, f. 25. október 1954.
Barn þeirra:
1. Silja Karen Júlíusdóttir, f. 30. mars 1984.

II. Fyrrum maður Guðrúnar Lindu er Guðmundur Guðmundsson, vélstjóri, f. 3. maí 1953. Foreldrar hans Guðmundur Siggeir Ágústsson, verslunarmaður, kaupmaður, verkstjóri, f. 25. október 1922, d. 17. október 2006, og kona hans Jóhanna Ágústsson, húsfreyja, f. 30. janúar 1931, d. 7. ágúst 1971.
Börn þeirra:
2. Jóhanna Guðmundsdóttir, f. 7. júní 1972.
3. Elmar Örn Guðmundsson , f. 28. mars 1978.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.