Ásta Þorvarðardóttir
Ásta Þorvarðardóttir frá Siglufirði, húsfreyja á Hólagötu 43 fæddist 17. júlí 1929 á Suðurgötu 45 á Siglufirði og lést 13. febrúar 2016 í Hraunbúðum.
Foreldrar hennar voru Þorvarður Tómas Stefánsson frá Selkoti u. Eyjafjöllum, sonur
Vilborgar Þórðardóttur húsfreyju, síðar í Sigtúni; hann trésmíðameistari, byggingafulltrúi á Siglufirði, f. 15. október 1900, d. 30. júlí 1979, og Guðrún Pálsdóttir frá Smiðsgerði í Kolbeinsdal í Skagafirði, húsfreyja, f. 15. desember 1909, d. 29. desember 1994.
Ásta var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Þorvaldur Örn giftu sig 1953, eignuðust sex börn. Þau bjuggu í fyrsu í Holti, en byggðu húsið við Hólagötu 43 og bjuggu þar lengi, uns þau fluttu til Reykjavíkur á 10. tugi síðustu aldar, bjuggu í Vættarborgum 6.
Þorvaldur Örn lést 2002. Ásta sneri til Eyja og dvaldi í Hraunbúðum. Hún lést þar 2016.
I. Maður Ástu, (25. maí 1953), var Þorvaldur Örn Vigfússon frá Holti, húsgagnasmíðameistari, f. 24. janúar 1929, d. 16. september 2002.
Börn þeirra:
1. Guðrún Linda Þorvaldsdóttir, f. 3. janúar 1953 í Holti.
2. Valgerður Þorvaldsdóttir húsfreyja, f. 10. júní 1955 í Holti. Maður hennar Ola K. Nå.
3. Þorvarður Vigfús Þorvaldsson húsgagna- og húsasmíðameistari, f. 20. nóvember 1956, d. 9. janúar 2015.
4. Kona hans Guðrún Bjarný Ragnarsdóttir.
5. Jóhanna Erla Þorvaldsdóttir, f. 25. september 1960. Sambýlismaður hennar Sigurður Guðmundsson.
6. Hannes Þorvaldsson, f. 6. júní 1969. Kona hans Anna M. Sívertsen.
7. Björk Þorvaldsdóttir, f. 31. desember 1973. Maður hennar Hjalti Erdmann Sveinsson.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Morgunblaðið 25. febrúar 2016. Minning.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.