Kristín Ástgeirsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. september 2024 kl. 14:29 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. september 2024 kl. 14:29 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Kristín Ástgeirsdóttir.

Kristín Ástgeirsdóttir, sagnfræðingur, kennari, alþingiskona, jafnréttisstýra, f. 3. maí 1951 á Heiðarvegi 38.
Foreldrar hennar voru Ástgeir Kristinn Ólafsson sjómaður, útgerðarmaður, ljóð- og söngvaskáld, f, 27. febrúar 1914, d. 1. maí 1985, og kona hans Friðmey Eyjólfsdóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 14. nóvember 1923 í Reykjavík, d. 20. október 2016.

Börn Friðmeyjar og Ástgeirs:
1. Andvana drengur, f. 9. júlí 1947.
2. Drengur, f. 9. júlí 1947, d. 11. desember 1947.
3. Gunnlaugur Ástgeirsson kennari, f. 23. apríl 1949 á Landspítalanum. Kona hans Ósk Magnúsdóttir.
4. Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur, kennari, alþingiskona, jafnréttisstýra, f. 3. maí 1951 á Heiðarvegi 38.
5. Eyjólfur Ástgeirsson öryrki, f. 16. maí 1957 í Eyjum, d. 20. maí 1984 af slysförum.
6. Ólafur Ástgeirsson tæknifræðingur, f. 19. september 1960. Kona hans Aldís Einarsdóttir.

Kristín er ógift og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.