Ólafur Ástgeirsson (tæknifræðingur)
Ólafur Ástgeirsson, tæknifræðingur fæddist 19. september 1960 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Ástgeir Kristinn Ólafsson sjómaður, útgerðarmaður, ljóð- og söngvaskáld, f, 27. febrúar 1914, d. 1. maí 1985, og kona hans Friðmey Eyjólfsdóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 14. nóvember 1923 í Reykjavík, d. 20. október 2016.
Börn Friðmeyjar og Ástgeirs:
1. Andvana drengur, f. 9. júlí 1947.
2. Drengur, f. 9. júlí 1947, d. 11. desember 1947.
3. Gunnlaugur Ástgeirsson kennari, f. 23. apríl 1949 á Landspítalanum. Kona hans Ósk Magnúsdóttir.
4. Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur, kennari, alþingiskona, jafnréttisstýra, f. 3. maí 1951 á Heiðarvegi 38.
5. Eyjólfur Ástgeirsson öryrki, f. 16. maí 1957 í Eyjum, d. 20. maí 1984 af slysförum.
6. Ólafur Ástgeirsson tæknifræðingur, f. 19. september 1960. Kona hans Aldís Einarsdóttir.
Þau Aldís giftu sig, eignuðust eitt barn.
I. Kona Ólafs er Aldís Einarsdóttir, f. 31. október 1966 í Rvk. Foreldrar hennar Einar Jóhann Alexandersson, f. 14. janúar 1924, d. 25. júní 1998, og Bentey Guðmunda Hallgrímsdóttir. f. 9. maí 1925, d. 9. mars 2012.
Barn þeirra:
1. Ástgeir Ólafsson, f. 29. apríl 1995 í Rvk.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.