Marý Sigurjónsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júlí 2024 kl. 16:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júlí 2024 kl. 16:35 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Marý Sigurjónsdóttir, húsfreyja fæddist 26. júní 1946 á Brimbergi við Strandveg 37.
Foreldrar hennar Sigurjón Ólafsson, Siggi í Bæ, skipstjóri, f. 25. janúar 1918, d. 14. ágúst 2005, og kona hans Þórunn Gústafsdóttir, húsfreyja, f. 4. desember 1914, d. 2. maí 1995.

Börn Þórunnar og Sigurjóns:
1. Óli Kristinn Sigurjónsson sjómaður, f. 6. ágúst 1940 á Brimbergi, fórst með Hvítingi VE 2. september 1987, ókvæntur og barnlaus.
2. Marý Sigurjónsdóttir, f. 26. júní 1946 á Brimbergi. Maður hennar Pálmi Lorensson matsveinn.
3. Sigrún Sigurjónsdóttir, f. 28. ágúst 1949 í Árdal. Fyrrum sambúðarmaður hennar Sigurður Birgir Halldórsson. Maður hennar Konráð Gíslason vélstjóri.

Þau Pálmi giftu sig 1967, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu við Faxastíg 35, síðar við Áshamar 10.

I. Maður Marýjar, (21. desember 1967), var Pálmi Lorensson, matsveinn, veitingahússrekandi, f. 21. ágúst 1938, d. 30. desember 2021.
Börn þeirra:
1. Þórunn Björk Pálmadóttir, f. 27. maí 1968.
2. Jóhann Pálmason, f. 9. mars 1973.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.