Jón Þorláksson (Stóra-Gerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júní 2024 kl. 14:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júní 2024 kl. 14:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Jón Þorláksson (Stóra-Gerði)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Þorláksson frá Dufþekju í Hvolhreppi, vinnumaður í Stóra-Gerði, síðar í Utha fæddist 7. nóvember 1842 og lést 2. febrúar 1922.
Foreldrar hans voru Þorlákur Jónsson, frá Barkarstöðum, bóndi á Dufþekju, f. í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð 12. mars 1806, d. 9. maí 1864, og kona hans Sigríður Oddsdóttir, húsfreyja, f. 2. júní 1808 á Raufarfelli, d. 20. ágúst 1863.

Jón var vinnumaður hjá Sigríði Jónsdóttur systur sinni í Stóra-Gerði og fór með henni til Utah 1885.
Hann var ókvæntur og barnlaus.
Jón lést 1922.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.