Hreggviður Ágústsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. janúar 2024 kl. 18:29 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. janúar 2024 kl. 18:29 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hreggviður Ágústsson frá Selnesi á Skaga, Skagafirði, sjómaður, verkamaður, kafari fæddist þar 16. maí 1916, fórst með flugvélinni Glitfaxa 31. janúar 1951.
Foreldrar hans voru Ágúst Rögnvaldur Hreggviðsson frá Stað í Reykhólasveit, bóndi á Selnesi, síðar bryggjusmiður, verkstjóri, verkamaður á Sauðárkróki, f. 16. maí 1888 á Stað, d. 5. nóvember 1970, og kona hans Inga Sigurrós Jónsdóttir húsfreyja, f. 18. september 1894 í Brekkukoti í Efribyggð í Skagafirði, d. 7. júlí 1921.

Þau Jakobína giftu sig 1937, eignuðust tvö börn, en misstu annað þeirra á öðru ári þess. Þau bjuggu í Miklagarði á Sauðárkróki 1938, í Kleif þar 1939 og 1946.
Jakobína lést 1946 og Hreggviður fórst 1951.

I. Kona Hreggviðs, (1. desember 1937), var Jakobína Björnsdóttir frá Miðeyjarhólmi í A.-Landeyjum, húsfreyja, f. þar 5. febrúar 1918, d. 21. september 1946.
Börn þeirra:
1. Rögnvaldur Ágúst Hreggviðsson húsasmíðameistari, f. 13. júlí 1937. Kona hans er Hulda Samúelsdóttir.
2. Inga Steina Hreggviðsdóttir, f. 23. apríl 1942, d. 26. júlí 1943.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.