Helga Jónsdóttir (Goðalandi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. mars 2024 kl. 17:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. mars 2024 kl. 17:25 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Helga Jónsdóttir


Helga Jónsdóttir fæddist 19. janúar 1874 á Akurey og lést 19. október 1947. Hún var yngsta dóttir hjónanna Jóns Einarssonar (1834 - 1894), bónda í Akurey, Sigluvíkursókn og Helgu Einarsdóttur (1835 - 1915).

Systkini hennar voru Einar "eldri" Jónsson (1864 - 1925), Guðrún "eldri" Jónsdóttir (1865 - 1923), Guðrún "yngri" Jónsdóttir (Gertrude Burkeson) (1866 - 1940), Einar "yngri" Jónsson (1867 - 1950), Sólveig Jónsdóttir (1868 - 1947), Guðmundur Jónsson (1871 - 1874), Ólafur Jónsson (1872 - 1967) og Guðbjörg Jónsdóttir (1878 - 1878)

Helga Jónsdóttir flutti til Vestmannaeyja ásamt fjölskyldu sinni árið 1908 og þau settust fyrst að í Garðhúsum en keyptu síðar Dvergastein og bjuggu þau þar í þrjú ár. Fyrir 1920 settist fjölskyldan að í Skjaldbreið og fluttust þau síðan að Goðalandi árið 1922, sem var byggt af eiginmanni hennar, Guðmundi Magnússyni og bjuggu þar til dauðadags.

Helga Jónsdóttir giftist Guðmundi Magnússyni árið 1902 og átti með honum fjögur börn.
Þau eru:
1. Magnús Karl Guðmundsson, f. 04.05.1903, d. 10.05.1993.
2. Jón Guðmundsson, f. 15.07.1905, d. 04.03.1972.
3. Guðmunda Margrét Guðmundsdóttir, f. 19.03.1908, d. 04.09.1996.
4. Dagmar Aðalbjörg Guðmundsdóttir, f. 21.06.1914, d. 30.01.1999.


Heimildir

  • Niðjatal
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.