Abelone Klog

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. nóvember 2023 kl. 10:58 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. nóvember 2023 kl. 10:58 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Abelone Klog, fædd Holm, húsfreyja í Danska-Garði fæddist (1745).

Hún mun hafa dvalist um skeið í Eyjum á síðari hluta 18. aldar, var komin þangað a.m.k. 1766 við fæðingu Ingeborg.
(Dánarskrár voru fyrst haldnar í Eyjum 1785, fermingar-, hjónabands- og fæðingaskrár 1786).

Maður hennar var Hans Jensen Klog forstjóri konungsverslunarinnar í Danska-Garði frá 1750, eigandi Garðsverslunar frá 1788-1798. Þau fluttust til Danmerkur eftir að eignir þeirra voru seldar 1798.
Börn þeirra í Eyjum voru:
1. Ingeborg Klog húsfreyja, f. 1766, d. 6. maí 1843 i Goslunde í Danmörku. Maður hennar Jorgen Borch.
2. Tómas Klog, sem varð landlæknir að Nesi við Seltjörn, fæddur 15. apríl 1768 í Eyjum og lézt 31. janúar 1824 í Nyköbing á Falstri. Hann var skipaður landlæknir 25. maí 1804 og veitt lausn 23. júní 1815. Kona hans Magdalene Sophie Klog.
3. Karen Klog, f. 1769 í Eyjum. Maður hennar Soren Jorgensen Hee.
4. Jensine Klog, f. um 1775 í Eyjum.
5. Jens verzlunarstjóri í Eyjum (1801), f. um 1778, d. 1811.
6. Anna Soffía, f. um 1778, á lífi 1860.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.