Einar Gylfi Jónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. mars 2024 kl. 11:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. mars 2024 kl. 11:42 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Einar Gylfi Jónsson.

Einar Gylfi Jónsson sálfræðingur, kennari fæddist 1. september 1950 í Húsavík við Urðaveg 28a.
Foreldrar hans voru Jón Ólafur Kjartansson frá Húsavík, sjómaður, vélstjóri, verkalýðsleiðtogi, f. 16. júlí 1930, d. 13. desember 2016, og kona hans Sigríður Angantýsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 1. apríl 1932 á Geirseyri við Strandveg 18, d. 18. desember 1983.

Börn Sigríðar og Jóns:
1. Einar Gylfi Jónsson sálfræðingur í Reykjavík, f. 1. september 1950 í Húsavík.
2. Kjartan Jónsson netagerðarmaður á Stokkseyri, gangavörður í Reykjavík, f. 5. október 1952 á Skjaldbreið.
3. Helga Jónsdóttir húsfreyja, framkvæmdastjóri í Eyjum, f. 11. ágúst 1955 á Skjaldbreið.
4. Ástþór Jónsson stýrimaður og útgerðarmaður, verslunarstjóri, f. 26. ágúst 1957 á Skjaldbreið.
5. Heimir Jónsson stýrimaður, tölvufræðingur, forstöðumaður, f. 13. desember 1963 í Húsavík.
6. Jóhanna Ýr Jónsdóttir húsfreyja, sagnfræðingur, þýðandi, f. 25. nóvember 1974 á Sjúkrahúsinu.

Einar Gylfi var með foreldrum sínum, í Húsavík, á Skjaldbreið við Urðaveg 36 og í Hjarðarholti við Vestmannabraut 69.
Hann lauk landsprófi í Gagnfræðaskólanum í Eyjum 1966, kennaraprófi 1971, varð stúdent í K.Í. 1972, lauk B.A.-prófi í sálarfræði í H.Í. 1975 og varð sálfræðingur (cand. psych.) í Árósaháskóla 1979. Auk þess hefur hann sótt fjölda námskeiða á sviði sálfræðimeðferðar, áfengismeðferðar, forvarna, ráðgjafar og handleiðslu.
Hann vann í frystihúsi og við sjómennsku 1959-1971, í vegavinnu sumarið 1972, var aðstoðarmaður við hjúkrun á Kleppsspítala sumrin 1973-75.
Hann var forfallakennari í Ármúlaskóla í Rvk 1972-1973, kennari þar 1973-1974, kennari í Nýja hjúkrunarskólanum 1980-1981, og hefur kennt á námskeiðum. Hann hefur verið sálfræðingur við Áfengisdeildir ríkisins 1979-1982 og við Félagsmálastofnun Kópavogs frá 1982- 1984, ráðgefandi og veitt fræðslu starfsfólki félagsmiðstöðva í Reykjavík 1983-87, sálfræðingur við unglingadeild Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar 1983-1987, forstjóri Unglingaheimilis Ríkisins 1988-1993.
Hann var ráðgefandi sálfræðingur fyrir CAAC (áfengisráðgjafardeild) á herstöð Bandaríska flotans á Miðnesheiði 1993-1996, ráðgefandi sálfræðingur fyrir meistarflokk karla ÍBV í knattspyrnu 1995-98, deildarstjóri Forvarnadeildar SÁÁ 1996-2000. Heimilisfriður (áður Karlar til ábyrgðar) - meðferðarúrræði vegna ofbeldis fyrir gerendur ofbeldis í nánum samböndum 1997-2002 og aftur frá 2006 -2019, ráðgefandi sálfræðingur fyrir meistarflokk karla KR í knattspyrnu 1999-2001.
Einar Gylfi var sálfræðingur og meðeigandi hjá Þeli - sálfræðiþjónustu ehf (síðar Líf og sál) frá 2000-2021.
Einar Gylfi hefur haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða víðsvegar um land um uppeldismál, forvarnir, iþróttasálfræði og samskipti á vinnustöðum.
Rit og fræðslustörf:
Krot á vegg - könnun á frístundum og áhugamálum unglinga - ásamt Ómari Kristmundssyni og Finnboga Gunnlaugssyni - ÍTR 1986.
Unglingar í vímuefnavanda - könnun á fjölda, aðstæðum og neyslumunstri - Unglingadeild Félagsmálastofnunar Reykjavíkur, 1987.
Unglingar og vímuefni - kafli í Hörður Þorgilsson og Jakob Smári: - Íslenska sálfræðibókin - Mál og menning, Reykjavík, 1993.
„Áhættuþættir varðandi neyslu unglinga á áfengi og öðrum vímuefnum“ - kafli í - Fíkniefni og forvarnir - Fræðslumiðstöð í fíknivörnum, Reykjavík 2001.
Trúnaðarstörf:
Sat í Fræðslunefnd Sálfræðingafélags Íslands 1980-1982.
Var í undirbúningsnefnd Ráðstefnu norrænna sálfræðinga 1986-87.
Var í ritstjórn Fréttabréfs SÍ 1987-88.
Sat í fulltrúaráð Barnaheilla 1992-96.
Var formaður Barnaheilla 1996-2000.
Var í vinnuhópi um aðgerðir vegna ólöglegs innflutnings fíkniefna 1999.
Var í Heilbrigðisráði ÍSÍ 2001-2009.
Sat Í stjórn Parkinsonsamtakanna 2003-2006.
Var formaður Félags sjálfstætt starfandi sálfræðinga frá 2011-2015.

Einar eignaðist barn með Helgu 1969.
Hann eignaðist barn með Guðrúnu Torfadóttur 1970.
Þau Guðrún Jóhannsdóttir giftu sig 1973, eignuðust tvö börn, en skildu.
Þau Ingibjörg giftu sig 1983, eignuðust tvö börn.
Ingibjörg lést 2022.

I. Barnsmóðir Einars Gylfa var Helga Högnadóttir, vann ýmis störf, f. 22. apríl 1950, d. 13. júní 2012.
Barn þeirra:
1. Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir ráðgjafi, skjalavörður, f. 18. september 1969. Maður hennar Grétar Örn Hostert.

II. Barnsmóðir Einars Gylfa er Guðrún Marta Torfadóttir læknir, f. 21. mars 1949.
Barn þeirra:
2. Ástríður Höskuldsdóttir grafískur hönnuður, f. 11. febrúar 1970.

III. Kona Einars Gylfa, (17. nóvember 1973, skildu), Guðrún Jóhannsdóttir skrifstofumaður, f. 9. desember 1952. Foreldrar hennar Jóhann Gíslason deildarstjóri, f. 1. maí 1925, d. 9. maí 1968, og kona hans Vilborg Guðrún Kristjánsdóttir húsfreyja, f. 29. mars 1930.
Börn þeirra:
3. Atli Freyr Einarsson forstjóri í Danmörku, f. 17. ágúst 1975. Kona hans Anna Svandís Gísladóttir.
4. Hjalti Már Einarsson viðskiptaþróunarstjóri og meðeigandi fyrirtækis, f. 29. september 1978. Kona hans Linda Ósk Þorleifsdóttir.

IV. Kona Einars Gylfa, (20. maí 1983), var Ingibjörg Pétursdóttir iðjuþjálfi, f. 20. september 1948, d. 18. mars 2022. Foreldrar hennar voru Pétur Guðmundsson skipstjóri, f. 18. desember 1917, d. 21. maí 1984, og kona hans Kristjana Margrét Sigurðardóttir húsfreyja, verslunarkona, f. 15. júní 1916, d. 23. september 2006.
Börn þeirra:
5. Pétur Einarsson aðstoðarverslunarstjóri, er í námi í mannauðsstjórnun, f. 16. júlí 1984. Kona hans Halla Þórarinsdóttir.
6. Sigríður Margrét Einarsdóttir náms- og starfsráðgjafi hjá H.Í., f. 9. nóvember 1987. Maður hennar Aron Steinn Ásbjarnarson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Einar Gylfi.
  • Íslendingabók.
  • Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.
  • Morgunblaðið 1. apríl 2022. Minning Ingibjargar Pétursdóttur.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.