Þóranna Ingimundardóttir
Þóranna Ingimundardóttir ljósmóðir fæddist á Gjábakka 16. janúar 1859 og dó í Eyjum 14. marz 1929. Foreldrar hennar voru Ingimundur Jónsson útvegsbóndi, formaður og hreppstjóri á Gjábakka og kona hans Margrét Jónsdóttir.
Þóranna varð vinnukona hjá Sigurði Sveinssyni í Nýborg 1881. Hún lærði ljósmóðurfræði í Reykjavík 1885 og lauk prófi 15. des. 1885. Var hún skipuð ljósmóðir í Eyjum frá 3. febrúar 1886 og gegndi því starfi til ársins 1924.
Þóranna giftist Sigurði Sveinssyni árið 1891.
Börn þeirra Sigurðar voru: Þórunn Anna Jóhanna, f. 4. júní 1884, drukknaði af Björgólfi við Klettsnef 16. maí 1901; Jónína Steinunn húsmóðir á Háeyri, f. 15. nóv. 1890, d. 31. mars 1970; Sigmundur, f. 13. sept. 1895, d. 28. ágúst 1896. Auk þess ólst upp hjá henni að miklu leyti dóttir Sigurðar með Sigríði Sighvatsdóttur frá Vilborgarstöðum: Júlíana Guðríður Ingveldur (Júlla á Búastöðum).
Heimildir
- Ljósmæður á Íslandi.
- Sigfús M. Johnsen: Saga Vestmannaeyja I, bls 150, 289.
- Þorsteinn Þ. Víglundsson. Nýborgarheimilið, Blik 1960