Rúnar Guðjón Einarsson
Rúnar Guðjón Einarsson frá Baldurshaga, sjómaður, stýrimaður, vélstjóri fæddist 22. júní 1953.
Foreldrar hans voru Einar Skæringsson frá Rauðafelli u. Eyjafjöllum, bifreiðastjóri, verkamaður, f. 16. júní 1912, d. 10. mars 2004, og kona hans Guðríður Konráðsdóttir frá Ólafsvík á Snæfellsnesi, húsfreyja, f. þar 28. maí 1914, d. 16. nóvember 2005.
Barn Guðríðar og Þórarins Helga Jónssonar:
1. Jóna Guðrún Þórarinsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 25. apríl 1936. Maður hennar, skildu, var Arnar Semingur Andersen.
Börn Guðríðar og Einars:
2. Þráinn Einarsson fjármálastjóri, skrifstofustjóri, framkvæmdastjóri, umboðsmaður, f. 20. nóvember 1942. Hann var kjörsonur. Kona hans Svava Sigríður Jónsdóttir.
3. Rúnar Guðjón Einarsson sjómaður, stýrimaður, vélstjóri á Hámundarstöðum í Vopnafirði, f. 22. júní 1953. Kona hans Gunnhildur Steinvör Ásmundsdóttir.
Rúnar var með foreldrum sínum í æsku.
Hann varð 3. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum, lauk 1. bekk í Stýrimannaskólanum í Reykjavík og 1. bekk í Vélskólanum.
Rúnar varð snemma sjómaður, var m.a. á Sæljóni RE, Bergvík KE, Ljósafelli frá Fáskrúðsfirði og Brettingi frá Vopnafirði. Hann stundaði síðan strandveiðar á Hólmi frá Vopnafirði.
Rúnar eignaðist barn með Elsu 1973.
Þau Gunnhildur giftu sig, eiga ekki börn saman.
I. Barnsmóðir Rúnars er Elsa Hákonardóttir, f. 24. febrúar 1956.
Barn þeirra:
1. Jörundur Orri Rúnarsson bakari, einkaþjálfari, sjómaður, f. 7. júní 1973. Kona hans Elva Björt Bjartmarsdóttir.
II. Kona Rúnars er Gunnhildur Steinvör Ásmundsdóttir húsfreyja, f. 9. desember 1956. Foreldrar hennar voru Ásmundur Jónsson sjómaður, f. 20. janúar 1928, d. 7. september 1958, og kona hans Inga Sigríður Kristmundsdóttir húsfreyja, f. 27. júní 1931, d. 5. október 2013.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Prestþjónustubækur.
- Rúnar Guðjón.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.