Sigurveig Sveinsdóttir (Birtingarholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. febrúar 2024 kl. 11:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. febrúar 2024 kl. 11:52 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurveig Sveinsdóttir frá Miðeyjarhólmi í A.-Landeyjum, húsfreyja fæddist 1. september 1872 og lést 19. aprí 1955.
Foreldrar hennar voru Sveinn Jónsson frá Hvammi u. Eyjafjöllum, bóndi, f. 6. nóvember 1840, d. 20. ágúst 1921, og kona hans Guðleif Erlendsdóttir húsfreyja, f. 16. febrúar 1842 í Neðri-Dal u. Eyjafjöllum, d. 1. febrúar 1938.

Sigurveig var með foreldrum sínum.
Þau Hallgrímur giftu sig 1895, eignuðust 11 börn. Þau bjuggu í Miðeyjarhólmi í A.-Landeyjum 1895-1903, á Felli í Mýrdal 1903-1926, voru hjá syni sínum þar 1926-1927.
Þau fluttu til Eyja 1927. Hún bjó hjá Elísabetu dóttur sinni í Birtingarholti og Þorgerði á Hásteinsvegi 5.
Sigurveig flutti til Reykjavíkur 1933 og bjó hjá dóttur sinni þar um skeið, en bjó hjá Elísabet í Eyjum 1950 og lést þar 1955.

I. Maður Sigurveigar, (26. október 1895), var Hallgrímur Brynjólfsson bóndi, verkamaður, f. 1. september 1870, d. 24. júlí 1937.
Börn þeirra:
1. Sveinn Hallgrímsson, f. 17. ágúst 1896, d. 1. apríl 1897.
2. Sveinn Hallgrímsson verkstjóri, f. 24. september 1897, d. 16. nóvember 1982. Fyrri kona Guðríður Grímsdóttir. Síðari kona Ragnheiður Svanlaugsdóttir.
3. Vilhjálmur Kristinn Hallgrímsson rafvirki í Reykjavík, f. 10. apríl 1899, d. 28. janúar 1997. Kona hans Hulda Ragnheiður Jónsdóttir.
4. Sigurleif Hallgrímsdóttir sjúkraþjálfari, f. 1. júlí 1900, d. 7. nóvember 1995.
5. Jónas Hallgrímsson blikksmiður í Reykjavík, f. 2. apríl 1902, d. 4. janúar 1988. Kona hans Sigríður Sóley Sveinsdóttir.
6. Brynjólfur Hallgrímsson, f. 1. ágúst 1903, d. 19. janúar 1915.
7. Ísleif Elísabet Hallgrímsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 4. apríl 1905, d. 30. mars 2004. Maður hennar Sigurður Friðriksson.
8. Þorgerður Hallgrímsdóttir húsfreyja, f. 19. júní 1906, d. 11. febrúar 1982. Maður hennar, skildu, var Oddsteinn Friðriksson.
9. Ísbjörg Hallgrímsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 19. október 1908, d. 16. nóvember 1995.. Maður hennar Þorsteinn Halldórsson.
10. Jón Hallgrímsson verkamaður í Vík í Mýrdal, f. 21. apríl 1910, d. 2. júní 2005. Kona hans Steinvör Sigríður Jónsdóttir.
11. Erlendur Hallgrímsson loftskeytamaður, f. 18. nóvember 1911, fórst með togaranum Sviða 2. desember 1941. Kona hans Sigríður Sveinsdóttir.
12. Brynjólfur Þorgrímur Hallgrímsson verkamaður, skrifstofumaður í Kópavogi, f. 18. maí 1913, d. 18. október 1991. Kona hans Þórhalla Friðriksdóttir.

I. Barnsmóðir Hallgríms að tveim börnum var Guðrún Einarsdóttir frá Ytri-Sólheimum í Mýrdal, f. 12. janúar 1888, d. 3. maí 1965.
Börn þeirra:
13. Jóhann Magnús Hallgrímsson trésmiður á Hellu, f. 23. september 1911, d. 1. janúar 1982. Fyrri kona hans Guðríður Jónasdóttir. Síðari kona hans Petrína Jakobsson.
14. Óskar Maríus Hallgrímsson rafvirki, rafmagnseftirlitsmaður í Mosfellsbæ, f. 18. mars 1922, d. 4. október 2009. Kona hans Margrét Ragna Jóhannsdóttir.



Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.