Elísabet Hallgrímsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ísleif Elísabet Hallgrímsdóttir.

Ísleif Elísabet Hallgrímsdóttir húsfreyja fæddist 4. apríl 1905 á Felli í Mýrdal og lést 30. mars 2004.
Foreldrar hennar voru Hallgrímur Brynjólfsson bóndi, síðar verkamaður í Eyjum, f. 1. september 1870 á Litlu-Heiði í Mýrdal, d. 24. júlí 1937 í Eyjum, og kona hans Sigurveig Sveinsdóttir frá Miðeyjarhólmi í A.-Landeyjum, húsfreyja, f. 29. ágúst 1868, d. 19. apríl 1955.

Börn Sigurveigar og Hallgríms:
1. Sveinn Hallgrímsson, f. 17. ágúst 1896, d. 1. apríl 1897.
2. Sveinn Hallgrímsson verkstjóri, f. 24. september 1897, d. 16. nóvember 1982. Fyrri kona Guðríður Grímsdóttir. Síðari kona Ragnheiður Svanlaugsdóttir.
3. Vilhjálmur Kristinn Hallgrímsson rafvirki í Reykjavík, f. 10. apríl 1899, d. 28. janúar 1997. Kona hans Hulda Ragnheiður Jónsdóttir.
4. Sigurleif Hallgrímsdóttir sjúkraþjálfari, f. 1. júlí 1900, d. 7. nóvember 1995.
5. Jónas Hallgrímsson blikksmiður í Reykjavík, f. 2. apríl 1902, d. 4. janúar 1988. Kona hans Sigríður Sóley Sveinsdóttir.
6. Brynjólfur Hallgrímsson, f. 1. ágúst 1903, d. 19. janúar 1915.
7. Ísleif Elísabet Hallgrímsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 4. apríl 1905, d. 30. mars 2004. Maður hennar Sigurður Friðriksson.
8. Þorgerður Hallgrímsdóttir húsfreyja, f. 19. júní 1906, d. 11. febrúar 1982. Maður hennar, skildu, var Oddsteinn Friðriksson.
9. Ísbjörg Hallgrímsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 19. október 1908, d. 16. nóvember 1995.. Maður hennar Þorsteinn Halldórsson.
10. Jón Hallgrímsson verkamaður í Vík í Mýrdal, f. 21. apríl 1910, d. 2. júní 2005. Kona hans Steinvör Sigríður Jónsdóttir.
11. Erlendur Hallgrímsson loftskeytamaður, f. 18. nóvember 1911, fórst með togaranum Sviða 2. desember 1941. Kona hans Sigríður Sveinsdóttir.
12. Brynjólfur Þorgrímur Hallgrímsson verkamaður, skrifstofumaður í Kópavogi, f. 18. maí 1913, d. 18. október 1991. Kona hans Þórhalla Friðriksdóttir.
Börn Hallgríms og Guðrúnar Einarsdóttur:
14. Jóhann Magnús Hallgrímsson trésmiður á Hellu, f. 23. september 1911, d. 1. janúar 1982. Fyrri kona hans Guðríður Jónasdóttir. Síðari kona hans Petrína Jakobsson.
15. Óskar Maríus Hallgrímsson rafvirki, rafmagnseftirlitsmaður í Mosfellsbæ, f. 18. mars 1922, d. 4. október 2009. Kona hans Margrét Ragna Jóhannsdóttir.

Elísabet var með foreldrum sínum á Felli til 1927, en þá fluttu þau til Eyja.
Þau Sigurður giftu sig 1926 í Eyjum, eignuðust 3 börn, en misstu eitt þeirra þriggja ára. Þau bjuggu í Birtingarholti við Vestmannabraut 61, á Vestmannabraut 72 til 1944, og síðan á Hásteinsvegi 17. Þar bjuggu þau til Goss. Þau fluttu á Stokkseyri og bjuggu þar um skeið. Elísabet bjó síðast að Eyjaseli 3 á Selfossi (Árborg).
Sigurður lést 1980 og Elísabet 2004.

I. Maður Elísabetar, (13. nóvember 1926), var Sigurður Friðriksson útgerðarmaður, vélstjóri, verkstjóri frá Rauðhálsi í Mýrdal, f. 22. ágúst 1898, d. 7. maí 1980.
Börn þeirra:
1. Sigurveig Sigurðardóttir, f. 29. september 1927 í Birtingarholti, d. 4. apríl 1930.
2. Högna Sigurðardóttir, f. 6. júlí 1929 í Birtingarholti, d. 10. febrúar 2017.
3. Móeiður Sigurðardóttir, f. 20. apríl 1944 á Vestmannabraut 72.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 11. apríl 2004. Minning.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.