Aðalheiður Árnadóttir (Burstafelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. maí 2024 kl. 15:04 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. maí 2024 kl. 15:04 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Aðalheiður

Steinunn Aðalheiður Árnadóttir frá Burstafelli, húsfreyja, verzlunarmaður, síðast í Reykjavík, fæddist 7. jan. 1913 í Götu í Eyjum og lézt 20. okt. 1987 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Árni Oddsson, f. 1888 og k.h. Sigurbjörg Sigurðardóttir, f. 1883.

Fyrri maður hennar var (skildu): Kristján Sigurður Sigurjónsson, f. 20. apríl 1908, d. 16. júlí 1979.
Börn þeirra:

  1. Árni, f. 27. júli 1930, d. 16. júlí 1938 (Árni brann inni á Burstafelli árið 1938, ásamt Árna Oddssyni afa sínum og syni hans.)
  1. Kári Birgir, f. 1931.
  2. Íris Sigurbjörg, f. 25. september 1933, d. 26. júlí 2011.

Síðari maður Aðalheiðar, (13. október 1945), var Ágúst Bjarnason, f. 18. ágúst 1910, d. 3. janúar 1993.
Barn hans og stjúpbarn hennar:

  1. Hörður Ágústsson verkstjóri, f. 22. ágúst 1932, d. 22. febrúar 2008.

Myndir



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.