Sigríður Sesselja Einarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. mars 2024 kl. 21:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. mars 2024 kl. 21:30 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Sesselja Einarsdóttir frá Miðey í A-Landeyjum, verkakona, saumakona fæddist þar 26. apríl 1894 og lést 29. desember 1987.
Foreldrar hennar voru Einar Árnason bóndi í Miðey, hreppstjóri, sýslunefndarmaður, frumherji, f. 12. apríl 1858 á Kirkjulæk í Fljótshlíð, d. 5. júlí 1922, og síðari kona hans Helga Ísleifsdóttir frá Kanastöðum í A-Landeyjum, húsfreyja, síðar á Hvolsvelli, f. 10. júlí 1867, d. 28. apríl 1944.

Sigríður var með foreldrum sínum í æsku.
Hún stundaði verkakvennastörf og sauma.
Sigríður var á Stað við Helgafellsbraut 10 1932, í Stakkagerði 1934, á Seljalandi við Hásteinsveg 10 1940 og 1955, síðar hjá Ásu og Einari syni sínum í Görðum við Vestmannabraut 32 og að Illugagötu 12.
Hún lést 1987.

I. Barnsfaðir Sigríðar var Erlendur Kristjánsson á Landamótum, útgerðarmaður, skósmiður, trésmiður, f. 7. desmber 1887 á Voðmúlastöðum í A-Landeyjum, d. 11. október 1931.
Barn þeirra:
1. Einar Magnús Erlendsson húsgagnasmiður, f. 11. janúar 1932 á Stað, d. 19. júlí 2017.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.