Símonía Pálsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. október 2023 kl. 13:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. október 2023 kl. 13:47 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Símonía Valgerður Pálsdóttir.

Símonía Valgerður Pálsdóttir fæddist 6. febrúar 1925 og lést 25. febrúar 1978. Hún var gift Guðmundur Karl Guðmundsson . Þau bjuggu fyrst að Brekastíg 25 en seinni árin bjuggu þau að Sóleyjargötu 4.

Frekari umfjöllun

Símonía Valgerður Pálsdóttir húsfreyja fæddist 7. febrúar 1925 í Langholti og lést 25. febrúar 1878.
Foreldrar hennar voru Páll Gunnlaugsson frá Uppsalakoti í Svarfaðardal, f. 11. júní 1895, drukknaði 24. janúar 1930, og kona hans Ingveldur Pálsdóttir frá Kerlingardal í Mýrdal, húsfreyja, vinnukona, f. 28. maí 1900, d. 18. nóvember 1958.

1. Bróðir Símoníu var Hermann Pálsson sjómaður, bifreiðastjóri, f. 23. janúar 1926, d. 12. október 1999. Kona hans var Margrét Ólafsdóttir.

Símonía var með foreldrum sínum skamma stund, en faðir hennar drukknaði er hún var tæpra fimm ára, fórst með vélbátnum Ara VE-235 í janúar 1930.
Hún var með móður sinni í Langholti 1925, síðar á árinu með foreldrum sínum í Sjávarborg, en í Ráðagerði 1927-1930, með ekkjunni móður sinni í Varmadal 1930 og 1934, en Hermann bróðir hennar var í fóstri hjá Andrési móðurbróður sínum og Ástu konu hans í Kerlingardal í Mýrdal. Þau Hermann voru með móður sinni á Staðarhóli 1940.
Þau Karl giftu sig 1943, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í fyrstu á Þrúðvangi við Skólaveg 22, voru komin á Brekastíg 25 1947 og síðar á Sóleyjargötu 4.
Símonía lést 1978 og Karl 1987.

I. Maður Símoníu Valgerðar, (23. október 1943), var Guðmundur Karl Guðmundsson vélstjóri, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 17. júlí 1922 í Sigtúni, d. 25. ágúst 1987.
Börn þeirra:
1. Ingi Páll Karlsson sjómaður, f. 8. júní 1945 á Skólavegi 22. Kona hans Svana Högnadóttir.
2. Marta Karlsdóttir húsfreyja, rekur ræstingafyrirtæki í Eyjum, f. 15. september 1947 á Brekastíg 25. Maður hennar Helgi Sigurlásson.
3. Áróra Karlsdóttir starfsmaður sundlaugar í Keflavík, f. 30. apríl 1966 í Reykjavík, óg.

Myndir


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.