Páll Gunnlaugsson (sjómaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Páll Gunnlaugsson frá Uppsalakoti í Svarfaðardal í Eyjafirðir, sjómaður fæddist þar 11. júní 1895 og drukknaði 24. janúar 1930.
Foreldrar hans voru Gunnlaugur Pálsson frá Sveinsstöðum í Svarfaðardal, þá húsmaður í Uppsalakoti, f. 14. janúar 1867, d. 28. ágúst 1914, og kona hans Una Guðríður Rósamunda Jóhannesdóttir húskona, f. 19. október 1869, d. 24. mars 1939.

Páll var með foreldrum sínum í Uppsalakoti 1901, léttadrengur í Uppsölum þar 1910, sjómaður og gestur í Byggðarholti í Eyjum 1920.
Þau Ingveldur giftu sig 1925, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Sjávarborg við giftingu 1925, í Ráðagerði 1927-1930.
Páll fórst með vélbátnum Ara VE-235 í janúar 1930.

I. Kona Páls, (19. desember 1925), var Ingveldur Pálsdóttir frá Kerlingardal í Mýrdal, húsfreyja, vinnukona, f. þar 28. maí 1900, d. 18. nóvember 1958.
Börn þeirra:
1. Símonía Valgerður Pálsdóttir húsfreyja, f. 7. febrúar 1925 í Langholti, d. 25. febrúar 1878. Maður hennar Guðmundur Karl Guðmundsson.
2. Hermann Pálsson sjómaður, bifreiðastjóri, f. 23. janúar 1926, d. 12. október 1999. Kona hans Margrét Ólafsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.