Stefanía Marinósdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. nóvember 2021 kl. 13:17 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. nóvember 2021 kl. 13:17 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Stefanía Marinósdóttir.

Stefanía Marinósdóttir frá Brekastíg 25, húsfreyja, verkakona fæddist 25. júní 1924 í Laugardal og lést 19. september 2016.
Foreldrar hennar voru Sigurvin Marinó Jónsson vélstjóri, skipstjóri, pípulagningameistari, f. 20. maí 1900, d. 16. desember 1962, og kona hans Guðbjörg Guðnadóttir húsfreyja, f. 8. nóvember 1902, d. 10. nóvember 1988.

Stefanía var með foreldrum sínum í Laugardal við fæðingu, með þeim á Brekastíg 33 1930, Faxastíg 25 1934 og enn við fæðingu Guðbjargar 1941.
Þau Pálmi giftu sig 1943, bjuggu á Faxastíg 25, á Skjaldbreið 1945, en komin á Hólagötu 18 1949. Þau eignuðust 4 börn.
Hjónin fluttust í Garðabæ 1974. Stefanía starfaði við niðursuðu hjá Ora og við nylonhúðun.
Þau fluttu til Eyja 2009 og bjuggu að síðustu í Hraunbúðum.
Pálmi lést 2011 og Stefanía 2016.

Maður Stefaníu, (18. desember 1943), var Pálmi Sigurðsson skipstjóri, netagerðarmaður frá Skjaldbreið, f. 21. júlí 1920, d. 25. nóvember 2011.
Börn þeirra:
1. Guðbjörg Pálmadóttir húsfreyja, f. 23. desember 1941 á Faxastíg 25. Maður hennar Geir Haukur Sölvason.
2. Sigmar Pálmason, f. 23. mars 1943 á Faxastíg 25. Kona hans Kristrún Axelsdóttir.
3. Páll Pálmason, f. 11. ágúst 1945 á Skjaldbreið, d. 6. nóvember 2021. Kona hans Guðrún Kristín Guðjónsdóttir.
4. Hafþór Pálmason, f. 22. febrúar 1954 á Hólagötu 18, d. 10. september 1977.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.