Guðjón Jónsson (Látrum)
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Guðjón Jónsson“
![](/images/thumb/e/e9/Gu%C3%B0j%C3%B3n_L%C3%A1trum.jpeg/250px-Gu%C3%B0j%C3%B3n_L%C3%A1trum.jpeg)
Guðjón Þórarinn Jónsson er fæddur 29. júní 1949. Foreldrar hans voru Jón Ísak Sigurðsson og Klara Friðriksdóttir.
Hann er kvæntur Önnu Svölu Johnsen frá Saltabergi og eiga þau fimm börn; Söru, Ívar, Daða, Maríu og Elísu. Þau búa að Stóragerði 6.
Guðjón bjó í húsinu Látrum á Vestmannabraut og er oft kallaður „Gaui á Látrum“. Gaui á Látrum er lærður rafvirki og starfar við það.
Gaui er í Hrauneyjarfélaginu.