Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2000/Sjómannadagurinn 1999

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. september 2017 kl. 10:41 eftir Vpj1985 (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. september 2017 kl. 10:41 eftir Vpj1985 (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Sjómannadagurinn 1999


Valmundur Valmundsson

Sjómannadagurinn 1999, var svolítið óhefðbundnari en menn eiga að venjast.
Sjómannadagsráð hafði samstarf við útvarpsstöðina Bylgjuna um dagskrá laugardagsins, og riðlaðist nokkuð hefðbundin dagskrá þann dag. Kappróðurinn hófst um hádegi og skemmtun á Stakkó upp úr kl. 1300 með Bylgjuhraðlestina og Hemma Gunn í fararbroddi. Var þar margt til gamans gert í ágætu veðri.

Benóný Friðriksson jr. tók þátt í fjöltefli á sjómannadegi. Svipurinn lýsir stöðunni
Guðmundur Sveinbjörnsson skipstjóri, klæddur búningi úrvalsdeildarliðs knattspyrnumanna

Kraftajötnar tókust á og buðu hraustum Eyjapeyjum í sjómann. Í þeirri rimmu sigraði Sveinn Mattíassson eftir harða keppni við bróður sinn Björn. Fyrir börnin var ýmislegt gaman í boði, alls konar leiktæki og landsfrægir skemmtikraftar héldu uppi ágætri dagskrá lungann úr deginum. Fór dagskráin á Stakkó hið besta fram og kann Sjómannadagsráð þeim sem að henni komu hinar bestu þakkir. Ekki má gleyma því að á föstudeginum fór fram knattspyrnukeppni á milli áhafna og mættu sex áhafnir til leiks, Knattspyrnan er alltaf að verða vinsælli keppnisgrein á Sjómannadegi og er það vel, hvað er skemmtilegra en að horfa á búttaða kokka og olíusmitaða vélstjóra sparka bolta með kallinn argandi á hliðarlínunni? Eftir hörkukeppni og nokkra vel meinta pústra, þar sem margur hásetinn og netamaðurinn fór á kostum stóð áhöfnin á Valdimar Sveinssyni uppi sem sigurvegari en einhverjir vildu nú meina að Steindór hefði boðið nokkrum atvinnumönnum pláss, túrinn fyrir sjómannadag!

Hjónin Óskar Þórarinsson og Ingibjörg Andersen bera bómsveig að minnisvarða á lóð Landakirkju

Í kappróðrinum á laugardeginum var frekar lítil þátttaka, aðeins ein áhöfn mætti til leiks, áhöfnin á Drangavík sem að sjálfsögðu sigraði í sínum riðli á tímanum 2 mín. 18 sek. Félögin sendu sveitir og Verðandamenn unnu á timanum 2 mín. 8 sek., Vélstjórafélagið varð í öðru sæti á 2 mín. 19 sek., og Jötunsmenn ráku lestina á 2 mín. 21 sek. Lúðrasveitin hóf dagskrána að venju með nokkrum Eyjalögum. Aldnar kempur voru heiðraðar, frá Jötni Jóhann Björgvinsson, frá Verðandi Guðmundur I. Guðmundsson, frá Vélstjórafélaginu Gíslí Grímsson, Pétur Arnmarsson fékk viðurkenningu fyrir að bjarga Vigfúsi Guðlaugssyni úr sjávarháska. Sigmund Jóhannsson var heiðraður af Sjómannadagsráði fyrir ötult og ósérhlífið starf í þágu öryggismála sjómanna. Friðrik Vigfússon hlaut Verðandiúrið fyrir bestu einkunn á skipstjórnarbraut Framhaldsskólans og Guðmundur Guðlaugsson skipstjóri á Þórunni Sveinsdóttur fékk verðlaun Siglingastofnunar fyrir bestu umgengni um öryggisbúnað í skipum.

Ræðumaður dagsins var Jón Bondó Pálsson og var gerður góður rómur að ræðu hans.

Þeir voru heiðraðir á sjómannadag, f.v. Gísli rímsson, Jóhann Björgvinsson, Guðmundur I. Guðmundsson, Pétur Árnmarsson, Sigmund Jóhannsson, Friðrik Vigfússon, Guðmundur Guðlaugsson

Samkórinn söng nokkur lög og fleíri skemmtikraftar tróðu upp. Að lokum þandi kempan Örvar Kristjánsson dragspilið og endaði dagskrána þetta árið.
Með virðingu og þökk til þeirra fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg til að dagurinn okkar yrði að veruleika.
F.h. Sjómannadagsráðs, Valmundur Valmundsson, formaður