Abelone Klog

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. nóvember 2023 kl. 10:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. nóvember 2023 kl. 10:01 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Abelone Klog, fædd Holm, húsfreyja í Danska-Garði fæddist (1745).

Hún mun hafa dvalist um skeið í Eyjum á síðari hluta 18. aldar, var komin þangað a.m.k. 1766 við fæðingu Ingeborg.
(Dánarskrár voru fyrst haldnar í Eyjum 1785, fermingar-, hjónabands- og fæðingaskrár 1786).

Maður hennar var Hans Jensen Klog forstjóri konungsverslunarinnar í Danska-Garði frá 1750, eigandi Garðsverslunar frá 1788-1798. Þau fluttust til Danmerkur eftir að eignir þeirra voru seldar 1798.
Börn þeirra í Eyjum voru:
Þau voru: 1. Ingeborg Klog húsfreyja, f. 1766.
2. Tómas Klog, sem varð landlæknir að Nesi við Seltjörn, fæddur 15. apríl 1768 í Eyjum og lézt 31. janúar 1824 í Nyköbing á Falstri. Hann var skipaður landlæknir 25. maí 1804 og veitt lausn 23. júní 1815.
3. Karen Klog, f. 1769 í Eyjum. Maður hennar Soren Jorgensen Hee.
4. Jens verzlunarstjóri í Eyjum (1801), f. 1778.
5. Anna Soffía.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.