Ingeborg Klog

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. nóvember 2023 kl. 13:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. nóvember 2023 kl. 13:12 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ingeborg Klog húsfreyja í Danmörku fæddist 23. febrúar 1767 í Eyjum og lést 6. maí 1843 í Gloslunde.
Foreldrar hennar voru Hans Jensen Klog kaupmaður í Eyjum, síðar í Danmörku, og kona hans Abelone Klog, fædd Holm, húsfreyja.

Börn Abelone og Hans Klogs hér:
1. Ingeborg Klog f. um 1766 í Eyjum, d. 6. maí 1843 í Gloslunde.
2. Tómas Klog landlæknir í Nesi við Seltjörn, f. 15. apríl 1768, d. 31. janúar 1824.
3. Jens Klog verzlunarstjóri í Eyjum 1801, f. um 1778, d. 1811.
4. Anna Soffía Klog, f. um 1778, á lífi 1860.

Ingeborg finnst ekki skráð í prestþjónustubækur í Eyjum, en nokkrar upplýsingar finnast á Google-vefnum og í upplýsingar frá Þorgilsi Jónassyni sagnfræðingi, ættuðum frá Vilborgarstöðum.
Um er að ræða manntal 1801 með nokkrum viðbótarupplýsingum. Þá var Hans Klog faðir hennar hjá henni 67 ára.

Maður hennar, (10. apríl 1793), var Jörgen Borch magister, doktor í heimspeki, sóknarprestur, f. 24. febrúar 1767 í Odense, d. 17. mars 1824.
Börn þeirra:
1. Dorthea Appolone Borch, f. 1796.
2. Andrea Borch, f. 1799.
3. Hanne Christiane Borch, f. 1801, d. 1879.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.