Margrét Sigfúsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. mars 2016 kl. 20:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. mars 2016 kl. 20:09 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Margrét Sigfúsdóttir innanhússarkitekt fæddist 19. júlí 1963 í Eyjum.
Foreldrar hennar eru Sigfús Jörundur Árnason Johnsen, f. 1930, d. 2006 og k.h. Kristín Sigríður Þorsteinsdóttir, f. 1930. Þau bjuggu fyrst í Goðasteini, en síðan lengst í húsi sínu að Kirkjubæjarbraut 17.

Margrét og vinur hennar Hilmir Jóhannsson frá Svanhól Sigurðssonar á baklóð Kirkjubæjarbrautar 17. Í baksýn er Austurvegur 22 og Þurrkhúsið

.

Maki I (26. maí 1984, skildu 2000): Heimir Gunnarsson málarameistari, f. 15. marz 1959 í Rvk. Foreldrar: Gunnar Þorbergur Hannesson málmsteypumaður, síðar starfsmaður Vatnsveitu Reykjavíkur, f. 1925 og k.h. Guðrún Sigurðardóttir húsmóðir, f. 1924.
Börn: Sigfús, f. 1. febr. 1982, Atli, f. 31. ágúst 1987, Karen Sif, f. 20. nóv. 1994.

Maki II, sambýlismaður: Bjarni Sigurðsson framkvæmdastjóri, f. 1. marz 1961 í Rvk. Foreldrar: Sigurður Gunnar Bjarnason rafvirki, f. 1925, d. 2001 og k.h. (skildu) Þórunn Friðriksdóttir húsmóðir, f. 1929.

Nám og störf

Margrét lauk stúdentsprófi við Verzlunarskóla Íslands 1983, nam innanhússarkitektúr við Danmarks Design Skole og lauk prófi þaðan 1991. Hún hefur starfað í Reykjavík, en býr nú að Gegnishólaparti í Flóa.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.