Halldóra Eiríksdóttir (Stóra-Gerði)
Halldóra Eiríksdóttir vinnukona í Stóra-Gerði fæddist á síðari hluta 18. aldar.
Barnsfaðir hennar var Þorkell Jónsson frá Akurey í V-Landeyjum, sjómaður á Löndum.
Barn þeirra var:
Andvana fætt stúlkubarn 7. október 1795, „frilluborið“.
(Prestþjónustubækur voru fyrst haldnar í Eyjum: Dánarskrár, fermingar og hjónabönd 1785, fæðingarskrár 1786).
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.