„Jón Gíslason (Presthúsum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Jón Gíslason''' frá Presthúsum fæddist 23. nóvember 1848. <br> Foreldrar hans voru Gísli Jónsson bóndi, lóðs og hreppstjóri í [[...)
 
m (Verndaði „Jón Gíslason (Presthúsum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 8. júlí 2015 kl. 20:33

Jón Gíslason frá Presthúsum fæddist 23. nóvember 1848.
Foreldrar hans voru Gísli Jónsson bóndi, lóðs og hreppstjóri í Presthúsum, f. 11. apríl 1803, d. 28. ágúst 1861 og síðari kona hans Guðrún Valtýsdóttir húsfreyja, f. 1806, d. 6. júní 1866.

1. Systir Jóns var Kristbjörg Gísladóttir, síðar húsfreyja á Seyðisfirði.
2. Hálfsystir Jóns, sammædd, var
Guðrún Ólafsdóttir húsfreyja í Norðurgarði, f. 10. febrúar 1833, d. 30. ágúst 1906, kona Ísaks Jakobs Jónssonar bónda.

Jón var með foreldrum sínum í bernsku, en faðir hans lést af slysförum í Stórhöfða 1861, er Jón var á 13. árinu.
Hann var með móður sinni í Presthúsum í lok árs 1861 og 1862, léttadrengur í Túni 1863 og enn 1865, vinnumaður þar 1866-1867, vinnumaður í London 1868 og enn 1870, en fór til Kaupmannahafnar frá London á því ári.
Jón var ókvæntur og barnlaus í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.