Guðrún Valtýsdóttir (Presthúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Valtýsdóttir húsfreyja í Presthúsum fæddist 21. september 1809 á Murnavöllum í Stóra-Dalssókn u. Eyjafjöllum og lést 6. júní 1866.
Foreldrar hennar voru Valtýr Ófeigsson bóndi í Neðridal í Stóradalssókn 1801, vinnumaður í Eyvindarholti 1816, f. 17. febrúar 1771 á Seljalandi u. V-Eyjafjöllum, d. 14. desember 1830 í Steinum u. Eyjafjöllum, og Kristbjörg Eiríksdóttir húsfreyja, síðar vinnukona í Syðstu-Mörk, f. 11. febrúar 1777 í Stóradalssókn, d. 14. mars 1837.

Guðrún var niðursetningur í Vallatúni u. Eyjafjöllum 1816, vinnukona á Moldnúpi 1835, vinnukona á Leirum 1840 og 1844, hjú í Skálakoti 1845 með barn sitt Guðbjörgu Hinriksdóttur 2 ára.
Guðrún fluttist frá Skálakoti u. Eyjafjöllum að Presthúsm 1846, þá 36 ára, með dóttur sína Kristbjörgu Hinriksdóttur tveggja ára.
Hún var 39 ára gift húsfreyja í Presthúsum 1850 með manni sínum Gísla Jónssyni lóðs 48 ára. Með þeim var Kristbjörg Hinriksdóttir barn hennar 6 ára og sonur þeirra Jón Gíslason 3 ára. 1855 var Kristbjörg látin, en komin var Kristbjörg Gísladóttir þriggja ára.
1860 var hún í Presthúsum með Gísla lóðs og börnum þeirra, Jóni 13 ára og Kristbjörgu Gísladóttur 7 ára.
Gísli fórst við fýlaveiði 1861.
Guðrún hélt búskap til 1863, var ekkja í Götu í lok ársins, í Kastala 1864 með Kristbjörgu með sér.
Hún lést 1866.

Börn Guðrúnar:
I. Með Ólafi Péturssyni kvæntum manni í Ásólfsskála u. Eyjafjöllum, f. 3. október 1809, d. 30. mars 1859:
1. Guðrún Ólafsdóttir húsfreyja í Norðurgarði, f. 10. febrúar 1833, d. 30. ágúst 1906.

II. Börn með Hinriki Ólafssyni í Svaðbæli u. Eyjafjöllum, f. 15. febrúar 1811 í Fjósakoti í Meðallandi, V-Skaft.:
2. Guðbjörg Hinriksdóttir, f. 1843, hefur líklega dáið ung.
3. Kristbjörg Hinriksdóttir, f. 10. apríl 1844, d. 28. ágúst 1851.

III. Eiginmaður Guðrúnar, (3. febrúar 1847), var Gísli Jónsson bóndi, lóðs og hreppstjóri í Presthúsum, f. 11. apríl 1803, d. 28. ágúst 1861. Hann fékk stein í höfuðið við fýlaveiði í Stórhöfða og lést af afleiðingum slyssins.
Börn þeirra:
4. Gísli Gíslason, f. 31. ágúst 1847, d. 11. september 1847 úr ginklofa.
5. Jón Gíslason, f. 23. nóvember 1848. Var vinnumaður í London 1870, fór til Kaupmannahafnar frá London á því ári.
6. Kristmundur Gíslason, f. 30. ágúst 1852, d. 5. september 1852.
7. Kristbjörg Gísladóttir, f. 22. ágúst 1853, d. 27. janúar 1921.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.