„Ragnhildur Svipmundsdóttir (Stakkahlíð)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Ragnhildur Svipmundsdóttir''' húsfreyja í Stakkahlíð fæddist 11. desember 1879 á Loftsölum í Mýrdal og lést líklega Vestanhafs.<br> Foreldrar hennar voru [[Svipmund...) |
m (Verndaði „Ragnhildur Svipmundsdóttir (Stakkahlíð)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 22. maí 2015 kl. 17:55
Ragnhildur Svipmundsdóttir húsfreyja í Stakkahlíð fæddist 11. desember 1879 á Loftsölum í Mýrdal og lést líklega Vestanhafs.
Foreldrar hennar voru Svipmundur Ólafsson bóndi á Loftsölum, f. 23. nóvember 1825 í Hryggjum þar, d. 22. júlí 1912 í Eyjum, og kona hans Þórunn Karítas Árnadóttir húsfreyja, f. 10. mars 1839 á Dyrhólum í Mýrdal, d. 12. mars 1910 í Skarðshjáleigu þar.
Systkini Ragnhildar í Eyjum voru:
1. Ólafur Svipmundsson verkamaður á Löndum, f. 29. maí 1867, d. 1. júní 1946 í Eyjum.
2. Ingvar Svipmundsson vinnumaður í Nýjabæ 1890-1895, f. 27. nóvember 1868, d. 28. nóvember 1898 á Seyðisfirði.
3. Friðrik Svipmundsson útvegsbóndi á Löndum, f. 15. apríl 1871, d. 3. júlí 1935.
Ragnhildur fluttist til Eyja frá Loftsölum 1898, var vinnukona í Landlyst 1901, með Guðjóni á Garðstöðum 1906-1909.
Hún giftist Guðjóni 1908. Þau bjuggu í Stakkahlíð 1909. Þau fluttust til Vesturheims.
Ekkert finnst um brottför þeirra úr Eyjum né um Vesturför þeirra.
I. Fyrri maður hennar, (20. maí 1908), var Guðjón Þorvaldsson í Stakkahlíð, f. 20. september 1879, fluttist til Eyja 1899, var vinnumaður hjá Jóhönnu Árnadóttur og Gísla Lárussyni í Stakkagerði 1901, bjó á Garðstöðum með Ragnhildi 1906-1908, í Stakkahlíð 1909.
Hann fluttist til Kanada, var í Kanadiska hernum í fyrri heimsstyrjöldinni.
II. Annar maður hennar var Olsen.
Úr Heimskringlu í Winnipeg 25. desember 1946:
UPPLÝSINGAR ÓSKAST
Ræðismannsskrifstofa íslands
hefir verið beðin að reyna að
afla upplýsinga um Ragnhildi
Svipmundsdóttur, ættaða úr
Mýrdal í Vestur-Skaptafellssýslu,
er fluttist vestur um haf
til Canada með manni sínum,
Guðjóni Þorvaldssyni. Þa u hjónin
bjuggu, eftir því sem talið er,
í Winnipeg eða Selkirk þar til
Guðjón andaðist. Meðan þau
voru gift gekk hún undir nafninu
Mrs. Ragnhildur Thorvaldson.
Eftir lát Guðjóns mun
Ragnhildur hafa gifst norskum
manni Olsen að nafni og gekk
þá undir nafninu Hilda Olsen.
Er talið að þau hafi búið í Winnipeg
1927, en síðan hefir ekkert
frá henni frétst. Það er talið að
um 40 ár séu liðin síðan þau
Ragnhildur og Guðjón fluttust
vestur um haf. Skrifstofunni
væri kærkomið að fá vitneskju
um hvort kona þessi sé enn lifandi
og hvernig högum hennar
er varið, og hvar heimilisfang
bennar muni vera.
Upplýsingar sendast til Consulate of Iceland,
910 Palmerston Ave., Winnipeg
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimskringla, blað í Winnipeg 25. desember 1946.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.