Ragnhildur Svipmundsdóttir (Stakkahlíð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ragnhildur Svipmundsdóttir húsfreyja í Stakkahlíð fæddist 11. desember 1879 á Loftsölum í Mýrdal og lést líklega Vestanhafs.
Foreldrar hennar voru Svipmundur Ólafsson bóndi á Loftsölum, f. 23. nóvember 1825 í Hryggjum þar, d. 22. júlí 1912 í Eyjum, og kona hans Þórunn Karítas Árnadóttir húsfreyja, f. 10. mars 1839 á Dyrhólum í Mýrdal, d. 12. mars 1910 í Skarðshjáleigu þar.

Systkini Ragnhildar í Eyjum voru:
1. Ólafur Svipmundsson verkamaður á Löndum, f. 29. maí 1867, d. 1. júní 1946 í Eyjum.
2. Ingvar Svipmundsson vinnumaður í Nýjabæ 1890-1895, f. 27. nóvember 1868, d. 28. nóvember 1898 á Seyðisfirði.
3. Friðrik Svipmundsson útvegsbóndi á Löndum, f. 15. apríl 1871, d. 3. júlí 1935.

Ragnhildur fluttist til Eyja frá Loftsölum 1898, var vinnukona í Landlyst 1901, með Guðjóni á Garðstöðum 1906-1909.
Hún giftist Guðjóni 1908. Þau bjuggu í Stakkahlíð 1909. Þau fluttust til Vesturheims.
Ekkert finnst um brottför þeirra úr Eyjum né um Vesturför þeirra.

I. Fyrri maður hennar, (20. maí 1908), var Guðjón Þorvaldsson í Stakkahlíð, f. 20. september 1879.
Barn þeirra:
1. Þorsteinn Guðjónsson, f. 7. janúar 1906, d. 28. janúar 1906.

II. Annar maður hennar var Olsen.

Úr Heimskringlu í Winnipeg 25. desember 1946:
UPPLÝSINGAR ÓSKAST

Ræðismannsskrifstofa Íslands hefir verið beðin að reyna að afla upplýsinga um Ragnhildi Svipmundsdóttur, ættaða úr Mýrdal í Vestur-Skaptafellssýslu, er fluttist vestur um haf til Canada með manni sínum, Guðjóni Þorvaldssyni. Þau hjónin bjuggu, eftir því sem talið er, í Winnipeg eða Selkirk þar til Guðjón andaðist. Meðan þau voru gift gekk hún undir nafninu Mrs. Ragnhildur Thorvaldson.
Eftir lát Guðjóns mun Ragnhildur hafa gifst norskum manni Olsen að nafni og gekk þá undir nafninu Hilda Olsen.
Er talið að þau hafi búið í Winnipeg 1927, en síðan hefir ekkert frá henni fréttst. Það er talið að um 40 ár séu liðin síðan þau Ragnhildur og Guðjón fluttust vestur um haf.
Skrifstofunni væri kærkomið að fá vitneskju um hvort kona þessi sé enn lifandi og hvernig högum hennar er varið, og hvar heimilisfang hennar muni vera.
Upplýsingar sendast til Consulate of Iceland,
910 Palmerston Ave., Winnipeg


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimskringla, blað í Winnipeg 25. desember 1946.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.