„Jón Jónsson (Þingeyri)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
m (Verndaði „Jón Jónsson (Þingeyri)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 9. maí 2014 kl. 17:51
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Jón Jónsson“
Jón Jónsson sjómaður á Þingeyri fæddist í Hlíð undir Eyjafjöllum 24. júlí 1881 og lézt 14. ágúst 1953 í Vesturheimi.
Foreldrar hans voru Gunnhildur Gunnhildardóttir vinnukona á Þorvaldseyri, f. 1853 og Jón Hjartarson vinnumaður í Hlíð, f. 1838.
Jón fluttist til Eyja 1902 og stundaði sjómennsku.
Kona hans var Steinunn Sigurðardóttir, síðar húsfreyja á Þingeyri. Hann var síðari maður hennar.
Þau eignuðust eitt barn, Magnús Júlíus, f. 1. júlí 1905, d. 1942.
Þau Steinunn bjuggu í Lambhaga 1920. Þau byggðu húsið Þingeyri 1921 og bjuggu þar til ársins 1924, er þau seldu það Sigurjóni Sigurðssyni og fluttust til Vesturheims.
Heimildir
- Manntal 1920.
- Landeyingabók - Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson o.fl. Austur-Landeyjahreppur Gunnarshólma 1999.
- Óskar Pétur Friðriksson.