„Bjarni Stefánsson (Búastöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Bjarni Stefánsson (Búastöðum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip
Lína 2: Lína 2:
Foreldrar hans voru [[Stefán Guðmundsson (Kirkjubæ)|Stefán Guðmundsson]] bóndi, f.  1750, d. 13. febrúar 1793, og kona hans [[Vilborg Erlendsdóttir (Kirkjubæ)|Vilborg Erlendsdóttir]] húsfreyja, f. 1750, d. 15. mars 1836.

Foreldrar hans voru [[Stefán Guðmundsson (Kirkjubæ)|Stefán Guðmundsson]] bóndi, f.  1750, d. 13. febrúar 1793, og kona hans [[Vilborg Erlendsdóttir (Kirkjubæ)|Vilborg Erlendsdóttir]] húsfreyja, f. 1750, d. 15. mars 1836.

Bróðir Bjarna í Eyjum var [[Ólafur Stefánsson (Gerði)|Ólafur Stefánsson]] bóndi í Gerði, f. 11. apríl 1786.

Bróðir Bjarna í Eyjum var [[Ólafur Stefánsson (Stóra-Gerði)|Ólafur Stefánsson]] bóndi í Gerði, f. 11. apríl 1786.

Bjarni var vinnumaður á Vilborgarstöðum 1816.

Bjarni var vinnumaður á Vilborgarstöðum 1816.

Útgáfa síðunnar 8. maí 2014 kl. 20:27

Bjarni Stefánsson bóndi og sjómaður á Búastöðum fæddist 29. apríl 1790 í Eyjum og lést 3. júní 1855 á Tjörnum u. Eyjafjöllum.
Foreldrar hans voru Stefán Guðmundsson bóndi, f. 1750, d. 13. febrúar 1793, og kona hans Vilborg Erlendsdóttir húsfreyja, f. 1750, d. 15. mars 1836.

Bróðir Bjarna í Eyjum var Ólafur Stefánsson bóndi í Gerði, f. 11. apríl 1786.

Bjarni var vinnumaður á Vilborgarstöðum 1816.
Hann lærði garðrækt erlendis um 1820, mun hafa farið utan á vegum landbúnaðarfélagsins danska. Hann mun síðar hafa haft frumkvæði að því að leiðbeina fólki við garðrækt í Eyjum, en stjórnin sendi lengi rófna- og grænkálsfræ m.m. hingað til útbýtingar meðal bænda.
Bjarni og Rakel voru búandi á Búastöðum 1850. Rakel var komin að Nýjabæ 1853 og var þar próventukona til dd. Bjarni fór að Tjörnum og lést þar 1855.

Kona Bjarna, (15. nóvember 1825), var Rakel Bjarnhéðinsdóttir húsfreyja, f. 2. október 1794 í Eyjum, d. 17. júní 1856 í Nýjabæ, en hún var dóttir sr. Bjarnhéðins Guðmundssonar á Kirkjubæ og Önnu Guðmundsdóttur, dóttur sr. Guðmundar Högnasonar og Guðrúnar Hallsdóttur húsfreyju á Kirkjubæ. Þau Rakel og Bjarni voru því systkinabörn.
Börn þeirra hér:
1. Bjarnhéðinn Bjarnason, f. 29. október 1826, d. 13. nóvember 1826 úr „Barnaveiki“.
2. Bjarni Bjarnason, f. 24. apríl 1829, 14. maí 1829 úr „Barnaveiki“.
3. Guðmundur Bjarnason, f. 1. október 1833, d. 7. október 1833 úr „Barnaveiki“.

Heimildir