„Guðrún Loftsdóttir“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
m (Verndaði „Guðrún Loftsdóttir“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 25. apríl 2014 kl. 11:13
Guðrún Loftsdóttir frá Austari-Vilborgarstöðum, fæddist 19. júní 1920, síðar búsett í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Loftur Jónsson, f. 1891 og kona hans Ágústína Þórðardóttir, f. 1883.
Guðrún var afgreiðslukona í Bjarma, vefnaðarvöruverzlun Helga Benediktssonar, var afgreiðslukona og rak síðan Verzlun Önnu Gunnlaugsson í Eyjum, keypti hana 1972 og rak til goss. Flutti þá til Reykjavíkur og verzlaði þar til 64 ára aldurs, er hún gerðist afgreiðslukona í verzluninni Vogue og var þar til sjötugs. Býr nú í Breiðholti.
Eiginmaður Guðrúnar var Hörður Sigurgeirsson ljósmyndari, f. 1914, d. 1978. Í Eyjum bjuggu þau síðast í Hlaðbæ.
Börn þeirra eru Loftur, búsettur í Reykjavík, Friðrik, búsettur í Eyjum og Ágústa, búsett í Reykjavík.
Myndir
Heimildir
- Upphaflega grein skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Ágústa Harðardóttir.
- Guðrún Loftsdóttir.
- Pers.