„Guðríður Woolf (Vigfússon)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Verndaði „Guðríður Woolf (Vigfússon)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 19. apríl 2014 kl. 22:22

Guðríður Woolf húsfreyja, síðar í Vesturheimi fæddist 26. apríl 1858 og lést desember 1933.
Foreldrar hennar voru Valgerður Jónsdóttir, f. 20. ágúst 1832, d. 7. október 1896, og Woolf, danskur skipherra, sem komið hafði til Eyja.

Guðríður var þriggja ára með vinnukonunni móður sinni og Hjálmari Ísakssyni hálfbróður sínum í Kastala 1860, með húsfreyjunni móður sinni, hálfsystur sinni Sigurbjörgu Einarsdóttur og stjúpföður sínum Einari Jónssyni sjávarbónda í Litlabæ 1870. Hún var 22 ára móðir Margrétar Jónínu Markúsdóttur á fyrsta ári, móður sinni og fjölskyldu hennar í Litlabæ 1880.
Guðríður fór til Vesturheims 1886 ásamt Markúsi, börnunum Margréti, Sigríði, Valdimar, og móður sinni Valgerði og var ferðinni stefnt til Utah.

Maður Guðríðar, (21. desember 1882), var Markús Vigfússon vinnumaður frá Hólshúsi, þá húsmaður í Litlabæ, f. 25. desember 1851.
Börn Markúsar og Guðríðar hér:
1. Margrét Jónína Markúsdóttir, f. 21. nóvember 1878, d. 6. febrúar 1925.
2. Friðrik Grímur Markússon, f. 13. júlí 1882, d. 18. júlí 1882.
3. Sigríður Ingibjörg Markúsdóttir, f. 21. júlí 1883, d. 6. september 1943.
4. Valdimar Einar Markússon, f. 23. mars 1885, d. í júlí 1886 á leið til Utah.
Guðríður mun hafa fætt a.m.k. 7 börn Vestanhafs.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.