„Eyjólfur Þorbjörnsson (Búastöðum)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
m (Verndaði „Eyjólfur Þorbjörnsson (Búastöðum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 20. mars 2014 kl. 14:50
Eyjólfur Þorbjörnsson bóndi og hreppstjóri á Búastöðum vestri fæddist 1797 í Ystaskála u. Eyjafjöllum og lést 10. janúar 1840.
Faðir hans var Þorbjörn bóndi í Ásólfsskála þar 1801, f. 1772, Árnason, f. (1725), Þorbjörnssonar.
Móðir Eyjólfs og kona Þorbjörns var Vilborg húsfreyja, f. 1771, Tómasdóttir.
Eyjólfur var með foreldrum sínum í Ásólfsskála 1801, vinnumaður í Þorlaugargerði 1814, var þar 1822.
Hann var bóndi og hreppstjóri á Búastöðum.
Eyjólfur var bróðir
1. Vigdísar Þorbjörnsdóttur húsfreyju í Svaðkoti og
2. Árna Þorbjörnssonar bónda á Kirkjubæ og móðurbróðir
3. Vilborgar Þórðardóttur í Elínarhúsi.
Kona Eyjólfs var Ragnhildur Ingimundardóttir húsfreyja, f. 17. nóvember 1799 á Kirkjulæk í Fljótshlíð, d. 11. mars 1888.
Börn þeirra hér:
1. Guðrún Eyjólfsdóttir, f. ágúst 1826, d. 17. ágúst 1826.
2. Þorbjörg Eyjólfsdóttir, f. 31. október 1829, d. 6. maí 1915.
3. Guðrún Eyjólfsdóttir, f. 4. desember 1830, d. 11. desember 1830.
4. Guðríður Eyjólfsdóttir, f. 21. febrúar 1833, d. 1. mars 1833.
5. Andvana stúlka, f. 13. apríl 1834.
6. Þorbjörn Eyjólfsson, f. 21. maí 1835, d. 27. maí 1835.
7. Ólafur Eyjólfsson, f. 4. desember 1836, d. 15. desember 1836.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.